Hefur náð að frelsa sig úr bældu umhverfi Steinar Fjeldsted skrifar 8. janúar 2022 12:01 Hljómsveitin Vök gefur út sitt fyrsta lag á árinu og ber það nafnið Stadium. Lagið verður á væntanlegri hljómplötu sveitarinar sem kemur út seinna á árinu. Lagið Stadium fjallar um hið fullkomna frelsi og að ná tímapunkti í lífi sínu þar sem maður er loksins sáttur í eigin skinni. Stadium er framhald í sögunni sem var kynnt á EP-plötunni Feeding on a Tragedy. Á þessum tímapunkti hefur persónan í sögunni náð að frelsa sig úr bældu umhverfi og fundið frelsi og von með nýrri stefnu í lífinu. Í texta og hljóðmynd þessa lags eru mikið af vísunum í trúna og fjöllum við um manneskju sem býr í grunninn við ranga trú. Stadium fjallar um það að komast yfir þessar hindranir og finna sína réttu trú. Nafnið Stadium vísar í svið lífsins; að vera fylgst með, að vera dæmdur, að vera berskjaldaður. Hljómsveitin Vök hefur löngu getið sér gott orð fyrir draumkenndan og lagskiptan hljóðheim þar sem electro og indie poppi er blandað saman. Hljóðblöndun lagsins var í höndum Friðfinns Oculus og mastering gerði Glenn Schick. Þríeykið sem myndar Vök eru Margrét Rán söngkona og hljómborð, Einar Stef gítar- og bassaleikari og Bergur Dagbjartsson trommuleikari. Þau hafa unnið að plötugerðinni í hljóðverum sínum í Hafnarfirði og Reykjavík. Vök á mála hjá alþjóðlega fyrirtækinu Nettwerk en gefa út undir eigin merkjum á Íslandi. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Bíó og sjónvarp
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Bíó og sjónvarp