Byltingarkennd ný íslensk tækni Stefán Árni Pálsson skrifar 12. janúar 2022 10:30 Ný byltingarkennd íslensk tækni vekur athygli. Mikið hefur verið rætt um höfuðáverka íþróttafólks að undanförnu en nýlegar íslenskar rannsóknir hafa sýnt að afleiðingar þeirra geta bæði verið meira langvarandi og mun alvarlegri en áður var talið.
Og þetta á ekki bara við um íþróttafólk. Við getum öll lent í höfuðáverkum og höfuðáverkum fylgja yfirleitt hálsáverkar eða öfugt. En hálsáverkar eru á meðal algengustu stoðkerfisvandamála sem almenningur á Íslandi glímir við í dag og jafnframt ein helsta ástæða þess að fólk sækir sér þjónustu sjúkraþjálfara. Frosti Logason leit við hjá nýrri og hátæknilegri hálsgreiningar og höfuðáverka miðstöð Heilsuverndar í Urðarhvarfi í Kópavogi á dögunum. Miðstöðin samanstendur af Kim Endurhæfingu, Heilaheilsu og nýsköpunarfyrirtækinu Neckcare en við heimsóttum stöðina nýverið og hittum þar fyrir meðal annara Jón Magnús Kristjánsson en margir muna eftir honum af bráðamóttöku Landspítalans þar sem hann var lengi yfirlæknir en nú ber hann titilinn framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsuvernd. Erfitt í greiningu „Þessi miðstöð er mjög mikilvæg fyrir þá sem lenda í höfuð og hálsáverkum. Það er mjög erfitt í greiningu að finna nákvæmlega út umfang áverkans í byrjun. Það er stundum sem ekkert sést á röntgenmynd eða jafnvel tölvusneiðmynd í fyrstu rannsókn. Samt sem áður er fólk með einkenni sem hefur verulega áhrif á þeirra líf,“ segir Jón. Eitt helsta vopnið sem háls og höfuðáverka miðstöðin státar af er byltingarkennd ný íslensk tækni sem þróuð hefur verið af nýsköpunarfyrirtækinu Neckcare en um er að ræða hátæknibúnað sem ætlað er að meta stoðkerfisvanda í hálsi sem nýtist jafnt til greiningar og endurhæfingar. Tæknin er einkaleyfisvernduð og gæti því ef allt gengur eftir orðið næsta stóra útflutningsvara Íslands en Neckcare hefur tryggt sér einkaleyfi á vörunni í þremur heimsálfum í Kanada, Evrópu og Ástralíu. Þorsteinn Geirsson er framkvæmdastjóri Neckcare á Íslandi. „Það hafa ekki verið til nein greiningartól til að varpa ljósi á hálsskaða,“ segir Þorsteinn sem sýndi Frosta höfuðbúnað sem ætlaður er til að greina vandamálið ítarlega. „Göngunum úr tækinu er varpað upp í skýið og þar tekur hugbúnaður okkar við gögnunum og les úr þeim. Svo fá sjúkraþjálfarar eða læknar skýrslu sem þeir geta nýtt sér til annars vegar að greina vandann og síðan til að styðja við meðferðaferli þeirra sem við eiga, sjúklingana.“ Missti fótinn nítján ára Kim De Roy er helsti sjúkraþjálfari miðstöðvarinnar sem kom fyrst hingað til lands frá Belgíu árið 2001 eftir að hafa 19 ára gamall misst fót í óheppilegu vinnuslysi. En hann kynntist Íslandi í gegnum stoðtækjafyrirtækið Össur þar sem hann fékk sjálfur sinn fyrsta gervifót sem hann hefur meðal annars notað til að hlaupa heilu maraþon hlaupin en Kim setti einmitt heimsmet í Reykjavíkurmaraþoninu árið 2014 þegar hann náði besta tíma sögunnar í maraþonhlaupi aflimaðra. Kim varð síðar yfirmaður rannsókna og þróunar hjá Össuri en nú gegnir hann stöðu framkvæmdastjóra hjá Kim endurhæfingu. Frosti fékk Kim til að sýna áhorfendum hina byltingarkenndu Neckcare græju og fékk hann að sjá hvernig hálsáverkagreining fer raunverulega fram. Innan háls- og höfuðáverkamiðstöðvar vinnur þverfaglegt sérfræðingateymi lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og næringarfræðinga sem vinna öll að því marki að hámarka árangur og getu þeirra sem treysta á sjúkraþjálfun og endurhæfingu til að ná bata eftir slys eða önnur áföll. „Þetta er það fyrsta sinna tegundar hér á Íslandi og það fyrsta í heiminum sem er nákvæmlega með þessu sniði. Víðast hvar í heiminum eru svona miðstöðvar fyrir þá sem hafa lent í höfuð og hálsáverkum vegna þess að þetta krefst sérhæfðrar meðferðar. Við áætlum að það sé allt að fimm prósent Íslendinga eða allt að fimmtán þúsund einstaklingar sem einvertímann um ævina þurfi á þessari þjónustu að halda,“ segir Jón. Þorsteinn Geirsson segir að framtíðin sé bæði björt og spennandi hjá Neckare en nú upp úr áramótum stendur til að kynna tæknina fyrir bandaríska hernum og stórum fyrirtækjum í bandarískri heilbrigðisþjónustu auk þess sem að ný starfstöð fyrirtækisins verður opnuð í Norður Karólínu. Neckcare stefnir sem sagt að því að verða stórt alþjóðlegt fyrirtæki sem mun bjóða upp á góð atvinnutækifæri fyrir unga íslenska vísindamenn en hjá fyrirtækinu starfar mikið af vel menntuðu fólki eins og verkfræðingum, hugbúnaðarfólki, sjúkraþjálfurum og öðru heilbrigðisstarfsfólki. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Heilsa Ísland í dag Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Fleiri fréttir Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sjá meira