Ferðalög

„Ég er mjög stressaður“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Villi Neto og Alex kepptu á Buggy bílum í nýjasta þættinum af Alex from Iceland.
Villi Neto og Alex kepptu á Buggy bílum í nýjasta þættinum af Alex from Iceland. Stöð 2+

„Ég er svo mikil gunga, ég vil helst vera að chilla og horfa á bíómynd,“ segir Villi Netó. Skemmtikrafturinn viðurkenndi að hann væri stressaður áður en hann lagði af stað í buggy-ævintýri í nýjasta þættinum af Alex from Iceland á Stöð 2+. 

Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum. Hann ræddi þar meðal annars um það að honum líður betur á sófanum að horfa á mynd en í adrenalínáskorunum. Einnig talaði hann um sitt helsta áhugamál fyrir utan leiklistina.

Alex Michael Green er íslenskur ævintýramaður sem elskar ekkert heitar en áskoranir í íslenskri náttúru.  Í þáttunum fylgjumst við með Alex og félögum í ýmsum ævintýrum en takmarkið er að víkka sjóndeildarhring þjóðþekktra Íslendinga og fá þá til að takast á við eitthvað sem þau myndu annars aldrei þora.


Tengdar fréttir

Donna lærði að sörfa þrátt fyrir að kunna ekki að synda

„Kostirnir við þetta voru þeir að þetta var mjög gaman. Gallarnir voru þeir að ég dó nærum því,“ segir leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz sem var fyrsti gesturinn í nýju þáttum Alex From Iceland sem hófu göngu sína á Stöð 2+ í gær.

Fyrsta sýnishornið úr Alex from Iceland

Alex Michael Green er íslenskur ævintýramaður sem elskar ekkert heitar en áskoranir í íslenskri náttúru. Þann 27. janúar fer hann af stað með nýja þætti á Stöð 2+ efnisveitunni. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.