Lífið

Góðvild gaf Barnaspítala Hringsins tíu nýja hjólastóla

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ásdís Arna Gottskálksdóttir og Sigurður Jóhannesson afhentu hjólastólana fyrir hönd Góðvildar í andyri Barnaspítala Hringsins í dag.
Ásdís Arna Gottskálksdóttir og Sigurður Jóhannesson afhentu hjólastólana fyrir hönd Góðvildar í andyri Barnaspítala Hringsins í dag. Svanberg Sigurðsson

Góðvild styktarsjóður, sem vinnur fyrir langveik börn og börn með fötlun, afhenti í dag Barnaspítala Hringsins tíu nýja hjólastóla. Mikil þörf var fyrir fleiri barnahjólastóla. 

„Stuðningur góðgerðafélaga eins og Góðvildar er mjög mikilvægur fyrir starfsemi Barnaspítalans og við erum innilega þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf“ segir Ingileif Sigfúsdóttir, deildarstjóri hjá bráðamóttöku barna og göngudeild barna á spítalanum.

„Það er virkilega ánægjulegt að Góðvild geti stutt við Barnaspítala hringsins með því að gefa vandaða hjólastóla fyrir börn sem þurfa að ferðast á öruggan máta innan spítalans eftir alls kyns þjónustu,“ segir Ásdís Arna Gottskálksdóttir formaður Góðvildar um gjöfina.

Góðgerðafélagið Góðvild var stofnað í desember 2016. Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

Stólarnir sem Barnaspítali Hringsins fékk afhenta í dag.Svanberg Sigurðsson

Góðvild kemur að ýmsum verkefnum hér á landi en þau helstu eru:

  • Spjallið með Góðvild – Viðtalsþættir sem birtast á þriðjudögum á Lífinu á Vísi.
  • Hjálparlína Góðvildar – Hjúkrunarfræðingur aðstoðar fjölskyldur langveikra barna.
  • Hagsmunahópur Góðvildar – Hagsmunabarátta í umsjá foreldra langveikra barna.
  • Beinir styrkir – Góðvild styrkir einnig önnur góðgerðafélög.
  • Gjafastyrkir –Góðvild styrkir sérskóla, Barnaspítalann, sambýli, skammtímavistanir og fleiri með gjöfum sem nýtast börnunum.

Hægt er að horfa á nýjasta þáttinn af Spjallið með Góðvild í spilaranum hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

„Kennarar þurfa fleiri sér­fræðinga inn í kennslu­stofuna“

„Mér leið alltaf vel í grunnskóla, leið alltaf vel í skólanum og fannst kennarastarfið vera merkilegasta og mikilvægasta starf í heimi og stefndi alltaf á að verða kennari,“ segir Kolbrún G. Þorsteinsdóttir kennari og lýðheilsufræðingur.

Seldu æskuheimilið og flúðu sveitarfélagið

Alma Björk Ástþórsdóttir hefur talað opinskátt um skóla án aðgreiningar og að þetta kerfi virki ekki fyrir börn með sérþarfir. Í nýjasta þættinum af Spjallið með Góðvild segir Alma frá því að hún þurfti að flýja bæjarfélagið sitt til að fá betri þjónustu fyrir son sinn.

Meirihluti fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman

„Það sem sló mig strax í upphafi hvað það var lítil aðstoð sem fjölskyldum er veitt í svona aðstæðum. Þarna gerist atvik sem að breytir öllu í lífi fjölskyldu og aðstandenda og ekki síst breytir öllu mínu lífi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.