Manchester United þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli er liðið tók á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Heimamenn í United voru meira með boltann í upphafi leiks og það skilaði þeim marki á 21. mínútu. Þar var að verki Jadon Sancho eftir flottan undirbúning frá Marcus Rashford.
Leikmenn United héldu svo að þeir væru að fara með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn þegar Paul Pogba setti boltann í netið í uppbótartíma fyrri hálfleiks, en markið réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
Staðan var því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja, en Che Adams breytti því strax á þriðju mínútu síðari hálfleiks þegar hann jafnaði metin eftir stoðsendingu frá Mohamed Elyounoussi.
Þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka kom Cristiano Ronaldo boltanum í netið fyrir heimamenn, en það mark einnig réttilega dæmt af vegna ragnstöðu.
Hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið og því varð niðurstaðan 1-1 jafntefli. Manchester United situr nú í fimmta sæti deildarinnar með 40 stig eftir 24 leiki, jafn mörg og West Ham sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu. West Ham er þó með betri markatölu.
Southampton situr hins vegar í tíunda sæti deildarinnar með 29 stig.