Liverpool er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn gegn Ítalíumeisturum Inter Milan eftir góða ferð til Mílanó í kvöld.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en leikurinn endaði á fullkominn hátt fyrir enska liðið og má segja að það hafi verið verðskuldað en heimamenn í Inter áttu ekki eitt skot á mark Liverpool í leiknum.
Brasilíski sóknarmaðurinn Roberto Firmino kom inn af varamannabekknum hjá Liverpool í hálfleik og hann sá um að opna markareikninginn á Giuseppe Meazza þegar hann skoraði á 75.mínútu og kom Liverpool í forystu.
. . #INTLIV | #UCL pic.twitter.com/nwP8o6Znp8
— Liverpool FC (@LFC) February 16, 2022
Skömmu síðar, eða á 83.mínútu tvöfaldaði Mohamed Salah forystuna fyrir Liverpool og tryggði þar með enska liðinu 0-2 sigur.
Mo Salah's last eight away Champions League games:
— B/R Football (@brfootball) February 16, 2022
pic.twitter.com/sqPaTWclGF