Lífið

Eðvarð er í dag með þykkt og fallegt hár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eðvarð segist vera  mjög sáttur með nýja hárið.
Eðvarð segist vera  mjög sáttur með nýja hárið.

Eðvarð Gíslason hefur verið með skalla frá því hann var tvítugur, eins og svo margir karlmenn lenda í.

Hann var ekkert ósáttur við það en hann langaði að prófa að fá þykkt og mikið hár. Og nú er hann kominn með nýtt hár sett var með byltingarkenndri aðferð þar sem hann þarf ekki að hafa áhyggjur af hárinu hvorki í sundi eða sturtunni.

Vala Matt fór fékk að hitta Eðvarð eftir meðferðina í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Ég var ekkert svo ósáttur að vera ekki með neitt hár en það er gaman að vera með hár aftur,“ segir Eðvarð en um er að ræða hárkollu sem Eðvarð fékk um miðjan desember.

 „Ég varð að fara í allskonar próf til að athuga hvort ég sé með ofnæmi fyrir líminu og fleira. Þetta er mikið ferli. Ég er mjög sáttur. Það var mjög mismunandi hvernig fólk í kringum mig brást við og flest allir voru mjög hissa þegar þau sáu mig. Ég hef verið spurður hvort ég hafi farið í ígræðslu og margt annað,“ segir Eðvarð sem er í dag að læra alveg upp á nýtt að nota allskonar hárvörur.

„Ég get farið í sund með þetta hár og má bara lifa algjörlega eðlilegu lífi. Ég fer bara í sturtu og allt. Þetta er mikil breyting og ákveðin frelsun.“

Sigríður Margrét Einarsdóttir hárgreiðslumeistari sýnir í innslaginu hvernig sé hægt að setja hártoppa á konur bæði til þykkingar og lengingar. Einnig fór Vala og hitti unga námskonu Borghildi Gunnarsdóttur sem notar hárkollur til tilbreytingar dags daglega og breytir þannig um útlit á einfaldan og skemmtilegan hátt. En hárkollur eru mikið í tísku hjá ungum konum í dag.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.