Lífið

Bréfberarnir í Neskaupstað afþakka farartæki og skokka með póstinn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Laufey Sigurðardóttir og Heiðrún Þorsteinsdóttir.
Laufey Sigurðardóttir og Heiðrún Þorsteinsdóttir.

Það er líf og fjör hjá starfsfólki Póstsins í Neskaupstað þar sem tekist hefur að samræma vinnu og heilnæman lífstíl á einstakan hátt. Bréfberarnir afþakka notkun farartækja í vinnunni en ganga eða skokka þess í stað með póstinn um bæinn að vetri sem sumri, sama hvernig viðrar.

Um 1.500 manns búa í Neskaupstað. Gangan eða skokkið telur um tólf kílómetra á dag hjá bréfberunum Laufeyju Sigurðardóttur og Heiðrúnu Þorsteinsdóttur.

„Lýðheilsa er mikilvægur þáttur hjá okkur. Við hugsum allar vel um heilsuna, bæði hvað varðar hreyfingu og mataræði. Mataræðið hefur áhrif á orkustigið og margir upplifa orkuleysi eftir að tæta í sig sætabrauð eða súkkulaði í vinnunni. Þess vegna veljum við poppkorn og harðfisk fram yfir kökur, kex eða súkkulaði á kaffistofunni. Nýlega höfum við svo tekið upp á því að fá okkur frekar te en kaffi,” segir Hafdís Þóra Ragnarsdóttir, afgreiðlustjóri Póstsins í Neskaupstað.

Laufey Sigurðardóttir, Þórunn Björg Halldórsdóttir og Hafdís Þóra Ragnarsdóttir starfa á pósthúsinu í Neskaupstað og hefur tekist að samræma vinnu og heilnæman lífstíl á einstakan hátt.

Hafdís segir að bréfberarnir Laufey og Heiðrún líti á starf sitt sem hluta af daglegri hreyfingarútínu. 

„Þeim finnst alltaf gaman að koma í vinnuna og þær hlakka til að mæta og taka sinn göngutúr eða skokk með póstinn. Með þessum lífstíl og hugarfari eru fáir veikindadagar á pósthúsinu hér í bænum. Starfsumhverfið er mjög hvetjandi og hérna eru allir jákvæðir og glaðir alla daga sem smitar út frá sér til viðskiptavina," segir Hafdís.

Bréfberarnir Laufey Sigurðardóttir og Heiðrún Þorsteinsdóttir búnar að klæða sig í kuldagallann og tilbúnar að skokka með póstinn um bæinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.