Lífið

Væri helst til í að pakka dótturinni inn í bóluplast

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sindri Sindrason var fyrsti gestur í hlaðvarpinu Jákastið.
Sindri Sindrason var fyrsti gestur í hlaðvarpinu Jákastið. Vísir/Vilhelm

„Ætli maður hafi ekki verið hræddur við viðbrögðin, en svo hefur maður aldrei fundið fyrir fordómum,“ segir Sindri Sindrason fjölmiðlamaður, en hann kom út úr skápnum fyrir 24 árum síðan. 

„Ég held að Íslendingar séu bara mjög opnir fyrir fjölbreytileikanum og að allir séu einhvern veginn og alls konar.“

Sindri segist auðvitað ekki vera að gera lítið úr upplifun annarra.

„Við höfum bara aldrei fundið fyrir fordómum neins staðar, aldrei. Við erum bara mjög heppin að búa á þessu landi,“ útskýrir Sindri en hann er giftur og ættleiddi stúlku fyrir nokkrum árum með eiginmanninum. Í hlaðvarpinu Jákastið ræddi Sindri um líf sitt við Kristján Hafþórsson. 

Rúðustrikaður og íhaldssamur

„Ég er nokkuð rúðustrikaður hvernig ég vil hafa hlutina,“ segir Sindri í viðtalinu þegar íhaldssemi hans berst í tal. Hann viðurkennir að ofvernda oft dótturina og fær einnig martraðir um að eitthvað komi fyrir hana.

„Maður verður samt að passa að börnin læri og hafi eitthvert sjálfræði og læri að reka sig á.“

Helst myndi hann samt vilja pakka henni inn í bóluplast (e. bubblewrap) og rúlla henni þannig út í lífið. Emilía Katrín, dóttir þeirra, kom til hjónanna í byrjun árs 2012, þá rúmlega þriggja ára. Í viðtalinu ræðir hann um foreldrahlutverkið, að taka barn í fóstur, sambandið, ferilinn, hótelástina, utanvegahlaup og margt fleira. Þáttinn má heyra á TAL hlaðvarpsveitunni og í spilaranum hér fyrir neðan. Þættirnir Jákastið koma út alla þriðjudaga. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.