Lífið

„Leyfi mér að syrgja sjónina“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lilja og Þorkell eru bæði með leiðsöguhund og skiptir það sköpum. 
Lilja og Þorkell eru bæði með leiðsöguhund og skiptir það sköpum. 

Leiðsöguhundar eru gríðarlega öflugt hjálpartæki fyrir blint og alvarlega sjónskert fólk og veitir því frelsi til að gera hluti sem annars væru mun erfiðari.

Biðlistinn eftir þessum hundum er þó langur og væri frábært ef fleiri styddu Blindrafélagið svo hægt væri að þjálfa fleiri hunda til verksins. Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi hitti Sindri Sindrason þau Þorkel og Lilju með hundana sína.

„Þetta var mikið áfall og ég dílaði bara við þetta eins og flestir íslenskir karlmenn og pakkaði þessu lengst aftan í hausinn á mér og pældi ekkert í þessu fyrr en mörgum árum seinna,“ segir Þorkell Jóhann Steindal sem hefur verið blindur í þónokkur ár.

„Ég hef alltaf verið með stafinn og hefur það í raun alltaf verið nóg fyrir mig en í sannleika sagt og þið lofið að segja engum frá þá langaði mig bara í hund og fékk besta hund í heimi. Ég hafði ekki mikla trú á því að það mynd hjálpa mér mikið en ég þurfti sannarlega að éta það ofan í mig á hverju einasta degi,“ segir Þorkell.

„Ég leyfi mér alveg að gráta og leyfi mér að syrgja sjónina,“ segir Lilja Sveinsdóttir sem á aðeins eftir þrjú prósent sjón á öðru auga.

„Þegar hann er með þetta hvíta beisli á sér er hann vinnuhundur en þegar ég tek það af honum þá er þetta bara hundur,“ segir Lilja sem hefur verið með hundinn Oliver síðustu ár.

„Hann er þjálfaður upp í Svíþjóð og það tekur tvö ár að þjálfa hann. Svo fer fram samþjálfun milli okkar.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.