Matur

Ofvaxnir skyndibitar og sælgætisskúlptúrar Tinnu á Akranesi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Tinna er hress og skemmtilegur listamaður á Akranesi, sem er að gera frábæra hluti með verkum sínum.
Tinna er hress og skemmtilegur listamaður á Akranesi, sem er að gera frábæra hluti með verkum sínum. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ofvaxnir skyndibitar, sælgætisskúlptúrar, pínulitlir og risa Royal búðingar, svo ekki sé minnst á Hubba Bubba og bláan ópal, eru meðal verka hjá listakonu, sem eru til sýnis á Akranesi. Sjón er sögu ríkari.

Maður verður eiginlega kjaftstopp þegar maður heimsækir Tinnu Royal í vinnu og sýningarrýmið hennar við Ægisbraut 30 á Akranesi. Andlitsmyndir út um allt, sem hún hefur málað, risa hamborgari og pizzur, allskonar sælgæti og jólatréð hennar með allskonar sælgætisskrauti, eins og bláum opal, æðisbitum og Royal búðingum, ásamt grænum baunum svo eitthvað sé nefnt.

„Ég er bara að láta mína drauma rætast, alla vitleysuna, sem mér dettur í hug og búa það til,“ segir Tinna hlægjandi.

Jólatréð hennar vekur sérstaka athygli.

„Já, þetta eru allt jólakúlur, sem ég hef verið að búa til, aðallega fyrir mig en svo vilja fleiri fá, þannig að ég er farin að framleiða jólakúlur. Og maður þarf alltaf að byrja snemma því þeir, sem eru að vinna í jólunum þurfa alltaf að byrja á miðju ári, eða í apríl,“ segir Tinna.

Jólatréð hjá Tinnu er frumlegt og fallegt.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það eru margir, sem sakna bláa opalsins en Tinna er með hann.

„Já, já, það er endalaust hægt að fá bláan opal hjá mér, djók, ég veit það ekki, þú þarft allavega ekki að slást um hann lengur á safnarasíðum, þú getur fengið hann hjá mér.“

Tinna hefur líka mikinn áhuga á öllu, sem tengist Royal búðingum.

„Upprunalega ástæðan fyrir því að ég heiti Royal er hér fyrir framan mig eða á trénu, ég er búin að setja allar sortir á tréð,“ bætir hún hlægjandi við.

Umbúðirnar af Bláum opal vekja alltaf mikla athygli hjá Tinnu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Tinna segist fá heilmikla athygli á verkin sín.

„Já, já, en ég er samt ekkert mikið að troða mér á aðra, fólk finnur mig. Það er rosalega gott að vera listamaður á Akranesi, komið bara í heimsókn, ég hlakka til að sjá ykkur,“ segir Tinna.

Hér er heimasíða Tinnu þar sem má sjá hvað hún er að fást við á Akranesi

Tinna fær alltaf mikla athygli á verkin sín þó hún sé ekkert að trana sér sérstaklega fram.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.