Lífið

Nýjar svalir á húsið gerbreyttu allri íbúðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragna bauð Völu í heimsókn.
Ragna bauð Völu í heimsókn.

Nýjar svalir sem settar voru utan á gamalt hús í Vesturbænum breytti algjörlega heimili athafna konunnar Rögnu Söru Jónsdóttur.

Hún flutti eldhúsið sitt inn í stofu og opnaði út í garðinn og setti svalir og stiga niður í garð. Eldhúsið er nýtt og samsett úr Ikea einingum og svo sérsmíðaðar á það hurðir sem eru einstaklega fallegar. 

Vala Matt leit við hjá Rögnu og fékk að sjá útkomuna í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.

Enda er Ragna Sara mjög smekkleg kona sem rekur hönnunarfyrirtækið Fólk Reykjavík þar sem lögð er áhersla á flotta íslenska hönnun og áhersla á umhverfismál. 

En Fólk Reykjavík mun sýna á Hönnunarmars nú 4. til 8. maí. Og hefur fyrirtækið þegar fengið viðurkenningar erlendis og mun meðal annars sýna hönnun sína í Kaupmannahöfn í næsta mánuði.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.