Myndband: Framkvæmdastjóri Ford skýtur á Tesla Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 1. maí 2022 07:01 F-15ö Lightning að koma út úr Rouge verksmiðjunni. Ford F-150 Lightning er formlega farinn í framleiðslu í hinni sögulegu Rouge verksmiðju Ford og innanhúss hjá Ford er bíllinn talinn jafn mikilvægur og Model T. Jim Farley, framkvæmdastjóri Ford skaut á Tesla við fögnuð vegna upphafs framleiðslu bílsins.
Jim Farley, framkvæmdastjóri Ford. Þegar rétt um 31 mínúta er liðin segir Farley að það sé hægt að gera hitt og þetta með bílnum, meira að segja hlaða aðra rafbíla, fyrir vini þína sem eiga Tesla. Á 35. mínútu skýtur Farley svo aftur, á Tesla og segir að bíll Ford sé mættur í kvöld ólíkt keppinautunum og vísar þar til Cybertruck frá Tesla sem enn er óljóst hvenær fer í framleiðslu. Ford F-150 Lightning verður búinn 10 kW aflgjafa sem Ford lýsir sem snjallaflrás á hjólum. Það er sú geta bílsins sem hefur skapað hvað mesta spennu vegna kynningar bílsins. Yfir 200.000 bílar hafa verið fráteknir og framleiðslugeta á næsta ári verður um 150.000. Ford vill setja sig á kortið sem leiðandi rafbílaframleiðanda, fyrir pallbíla hið minnsta. Áætlanir Ford miða að því að selja tvær milljónir rafbíla á ári frá og með 2026. Frá og með 2030 vill Ford að helmingur allra seldra bíla fyrirtækisins á heimsvísu verði rafbílar.
Vistvænir bílar Tesla Mest lesið Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Erlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Innlent „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Innlent „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Innlent