Parka Camping bókunarvélin bjargar buguðum ferðafjölskyldum Parka 2. júní 2022 11:51 Íslendingar voru mikið á ferðinni síðasta sumar og nýttu sér Parka bókunarvélina óspart. Kerfið sannaði sig rækilega og í ár hafa fleiri tjaldsvæði bæst við. „Það gerir ferðalagið svo miklu ánægjulegra og þægilegra að geta kíkt í símann að morgni og séð hvort það er laust pláss þar sem besta veðrið er í stað þess að komast að því að allt er fullt þegar við erum mætt á staðinn með bugaða og grenjandi krakka í aftursætinu,“ segir Arna Haraldsdóttir markaðsstjóri Parka en á vefsíðu Parka er hægt að bóka pláss á tjaldstæðum um allt land á einfaldan hátt.
Skipulagðir og óskipulagðir nýta sér bókunarvélina Á vefsíðunni er yfirlit yfir tjaldsvæði og hægt er að setja inn leitarorð til að sía út þá þjónustu sem sóst er eftir, til dæmis aðgang að rafmagni eða leiksvæði. Á síðunni má sá hvar er laust og bóka í símanum. Margir eru löngu búnir að tryggja sér pláss á sínu uppáhalds tjaldstæði fyrir sumarið meðan aðrir ætla að láta veðurspána ráða. Arna segir að það megi nefnilega skipta Íslendingum í tvær týpur þegar kemur að tjaldútilegum. „Annars vegar er það skipulagða fólkið er löngu búið að ákveða hvert það ætlar að fara og bókar allt með góðum fyrirvara heima í sófa. Það rennir svo í bara í plássið sitt á tjaldstæðinu með allt klárt. Svo er það spontant fólkið sem skellir sér af stað með stuttum fyrirvara og bókar bara í símanum þegar það kemur að skilti með upplýsingum frá Parka. Það er nefnilega ekki nauðsynlegt að forpanta, það er alveg hægt að elta bara sólina,“ segir Arna, enda er sá ferðamáti vinsæll á landi þar sem veðrið er óútreiknanlegt. Mikil ánægja með Parka Camping og fleiri tjaldsvæði bætast við Íslendingar voru mikið á ferðinni síðasta sumar og nýttu sér Parka bókunarvélina óspart. Kerfið sannaði sig rækilega og í ár hafa fleiri tjaldsvæði bæst við. Parka Camping bókunarvélin auðveldar einnig rekstraraðilum að halda úti starfsemi en með henni er ekki nauðsynlegt að hafa starfsfólk á svæðinu öllum stundum. Arna nefnir tjaldsvæði á hálendinu sem dæmi þar sem þó þarf að innheimta gjald til að standa undir rekstrarkostnaði. „Parka Camping bókunarvélin er einnig hentug þar sem landeigendur vilja hafa tjaldsvæði opið á veturna en mikil aukning er á ferðalögum á öðrum tímum en yfir hásumarið, sérstaklega húsbílaferðalög. Húsbílar þurfa að komast í rafmagn og fyrir það þarf að vera hægt að rukka, sem er einfalt með þessu kerfi,“ segir Arna.
Tjaldsvæði Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Tækni Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira