Tónlist

Halda afmælistónleika á Ingólfstorgi á laugardag

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guide To Iceland fagnar tíu ára afmæli fyrirtækisins með tónleikum á Ingólfstorgi. 
Guide To Iceland fagnar tíu ára afmæli fyrirtækisins með tónleikum á Ingólfstorgi.  Aðsend

Fyrirtækið Travelshift býður í tíu ára afmælistónleika á Ingólfstorgi næstkomandi laugardagskvöld. Tónleikarnir eru opnir öllum en Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör og nýstirnið Gugusar koma fram og skemmta viðstöddum.

Árið 2012 hóf Guide to Iceland göngu sína sem lítið sprotafyrirtæki með það að sjónarmiði að koma tilvonandi ferðafólki í samband við hjálpsama heimamenn og er nú í samstarfi við yfir 2000 ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Guide To Iceland heyrir nú undir Travelshift sem er í óða önn að víkka sig út fyrir landsteinana. Má sem dæmi nefna að búið er að setja af stað Guide to the Philippines.

„Stóra verkefnið sem fyrirtækið tekur sér nú fyrir hendur er stofnun Guide to Europe, sem mun veita sams konar markaðstorg fyrir ferðaþjónustu og Guide to Iceland, en á töluvert stærri skala,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í tilefni þess að Travelshift sé að setja á fót Guide to Europe verða dregnir tíu ferðavinningar til Evrópu fyrir viðstadda tónleikagesti.

Til þess að taka þátt þarf að fara á Facebook og skrá sig á viðburðinn. Sigurvegararnir verða svo dregnir úr potti á tónleikunum sjálfum.


Tengdar fréttir

Guide to Iceland skiptir um nafn

Ferðatæknifyrirtækið Guide to Iceland hefur breytt nafni sínu í Travelshift. Þetta kemur fram í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.