Sjálfsrækt í sumarfríinu: „Fólk er mjög gjarnt á að forgangsraða ekki sjálfsumhyggju“ Elísabet Hanna skrifar 6. júlí 2022 15:31 Erla ætlar að deila skemmtilegum verkefnu í sumar sem stuðla að sjálfsumhyggju. Aðsend. Jóga- og hugleiðslukennarinn Erla Súsanna Þórisdóttir nýtur þess að iðka sjálfsumhyggju á hverjum degi. Það gerir hún meðal annars með hugleiðslu, öndun, jóga, dagbókarskrifum, skógarböðum og dansi. Hún heldur úti miðlinum Töfrakistan þar sem hún gefur innsýn í lífið sitt og deilir góðum ráðum.
Erla er búsett í Danmörki ásamt Frey Alexandersyni, knattspyrnuþjálfara og þremur börnum. Erla segir það tilvalið að nýta sumarið til þess að innleiða góðar venjur sem miða að því að auka vellíðan okkar og segir það sérstaklega mikilvægt fyrir foreldra í sumarfríi með börnunum sínum. Hún ætlar næstu vikurnar að deila einföldum og skemmtilegum verkefnum með lesendum Vísis sem miða að því að auka vellíðan í sumarfríinu. Gefum henni orðið: Sjálfsumhyggja er allt sem er gott fyrir huga, líkama og sál og er því mjög misjafnt hvaða merkingu fólk setur í orðið. Það er hægt að iðka sjálfsumhyggju á marga vegu og þarf ekki að taka langan tíma og vera kostnaðarsamt. Tilvitnunin „Selfcare is giving the world the best of you, instead what is left of you“ (Karen Reed) er að mínu mati svarið við því af hverju við ættum að hlúa betur að okkur sjálfum. Dagbókaskrif geta verið form sjálfsumhyggju.Aðsend Gleyma að forgangsraða sjálfsumhyggju Fólk er mjög gjarnt á að forgangsraða ekki sjálfsumhyggju og lítur á það sem munað en ekki nauðyn. Það fyrsta sem ég legg til er að forgangsraða sjálfsumhyggju á hverjum og helst að morgni til að setja sig í fyrsta sæti strax og gefa þér því skilaboð inn í daginn að þú skiptir máli. Það gæti falið í sér að þú þurfir að vakna aðeins á undan heimilisfólkinu eða iðka á meðan börnin eru í kringum þig sem getur verið dýrmætt veganesti fyrir unga fólkið. Ef þetta skiptir þig miklu máli þá gæti jafnvel verið sniðugt að ræða þetta við maka eða aðstandanda og biðja um að fá til dæmis 30 mínútur á dag í friði til þess að hlúa að þér. Einnig er áhugavert að skoða í hvað tíminn þinn fer en tíminn okkar er dýrmætur og það er gott að velta því fyrir sér hvað við gerum þegar við fáum lausan tíma. View this post on Instagram A post shared by To frakistan (@tofrakistan) Dagamunur Það getur verið mikill dagamunur á því hvers við þörfnumst og góð spurning að morgni gæti verið „hvers þarfnast ég núna? Það sem kemur upp í hugann er ekkert endilega alltaf rétta svarið en þá er hjálpleg að spyrja sig annarrar spurningar „hjálpar það framtíðar mér? Því oft kemur ýmislegt upp í hugann sem er ekki beint hjálplegt eins og að leggjast upp í sófa að horfa á Netflix eða sitja meðvitundarlaus og skrolla í gegnum instagram sögur hjá fólki og áður en þú veist af er liðinn klukkustund sem hefði getað farið í eitthvað uppbyggilegra. Fyrsta verkefnið Það er ekki eftir neinu að bíða og er komið að fyrsta verkefninu. Ég mæli með því að þú nælir þér í dagbók/stílabók og byrjar á því að hanna sumarfrí fullt af sjálfsumhyggju. Settu þér eið og skrifaðu efst í dagbókina með undirskrift„ Ég heiti því að hlúa að mér daglega“. Skrifaðu nokkrar línur af hverju þú vilt hlúa betur að þér. Hvað gerir það fyrir þig? Næst skaltu skrifa sjálfsumhyggjulista þar sem þú skrifar niður hugmyndir að iðkun t.d hugleiðsla, göngutúr, hitta vinkonu/vin, jákvætt sjálfstal o.s.frv. Ekki draga úr neinu heldur skrifaðu allt sem þér dettur í hug þó það virðist vera óframkvæmanlegt. Það má láta sig dreyma. Þegar listinn er tilbúinn þá skaltu taka eitthvað þrennt af listanum sem þú ætlar að framkvæma strax næstu þrjá daga. Skrifaðu hjá þér á hverjum degi eitthvað eitt sem þú gerðir fyrir sjálfa/t/an þig. Skrifaðu einnig niður þá daga sem þú iðkaðir ekki sjálfsumhyggju og hvað stóð í vegi fyrir því og hvernig þú getir nýtt þá reynslu til að koma þessu í dagskránna næsta dag. Þangað til næst, farið vel með ykkur og njótið löngu sumarnótta.
Heilsa Geðheilbrigði Tengdar fréttir Mikilvægar æfingar fyrir göngugarpinn frá Önnu Eiríks Þjálfarinn Anna Eiríksdóttir nýtur þess að styrkja líkamann með góðri hreyfingu og deilir mikilvægum æfingum fyrir göngugarpa hér á Vísi. Hún skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu og við gefum henni orðið: 28. júní 2022 12:01 Hlaupaáætlum frá Önnu Eiríks: Hlaupum inn í sumarið! Þjálfarinn Anna Eiríksdóttir segir sumarið upplagðan tíma til þess að stunda hreyfingu úti og deilir níu vikna hlaupaáætlun með lesendum Vísis. Hún skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu og við gefum henni orðið: 11. júní 2022 12:30 Mest lesið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Aðstoðarmennirnir og ástin Lífið Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið Lítil þolinmæði fyrir hrekk Audda Lífið Segist vera nasisti sem elskar Hitler Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Lífið samstarf Fleiri fréttir Prinsessan eignaðist dóttur Segist vera nasisti sem elskar Hitler Lítil þolinmæði fyrir hrekk Audda Aðstoðarmennirnir og ástin Vefur um útivist í loftið Vetrarhátíð með gagnvirkri ljósasýningu hefst í dag Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Einhvern tímann var allt fyrst Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Frumsýning á Vísi: Óvæntir gestir hjá Væb-bræðrum Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga „Kemur í ljós að þetta er í raun einhverfa“ Kærasta Liam Payne tjáir síg í fyrsta sinn 340 fermetra listaverkahöll í Kópavogi Þriðja barn Gisele komið í heiminn Líkamsræktarfrömuður selur í Kópavogi Irv Gotti er látinn Halla og Björn létu sig ekki vanta á þorrablóti Álftaness Sleikurinn við Colin Farrell ógleymanlegur Hugsi yfir bílastæðamálum sem eru til skoðunar Peaky Blinders stjarna lét sig ekki vanta á The Damned Víðir hrasaði á þingi: Frjálsíþróttirnar björguðu Gulli Helga tók yfir og Sindri beið á kantinum Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Uppistandarar, ráðherrar og kempur á þorrablóti Vals „Dorrit var eiginlega Séð og heyrt stúlkan“ Drengurinn skal heita Ezra Sjá meira
Mikilvægar æfingar fyrir göngugarpinn frá Önnu Eiríks Þjálfarinn Anna Eiríksdóttir nýtur þess að styrkja líkamann með góðri hreyfingu og deilir mikilvægum æfingum fyrir göngugarpa hér á Vísi. Hún skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu og við gefum henni orðið: 28. júní 2022 12:01
Hlaupaáætlum frá Önnu Eiríks: Hlaupum inn í sumarið! Þjálfarinn Anna Eiríksdóttir segir sumarið upplagðan tíma til þess að stunda hreyfingu úti og deilir níu vikna hlaupaáætlun með lesendum Vísis. Hún skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu og við gefum henni orðið: 11. júní 2022 12:30