Lífið

„Það eru bara örfáir lukkunnar pamfílar sem hafa ekki lent á vegg“

Elísabet Hanna skrifar
Hljómsveitin FLOTT hefur verið að slá í gegn.
Hljómsveitin FLOTT hefur verið að slá í gegn. Aðsend.

Hljómsveitin FLOTT gaf nýlega frá sér lag sem ber heitið „Boltinn hjá mér“. Lagið er um kómísku hliðar stefnumótalífsins, er orkumikið og átti upphaflega ekki að vera gefið út. 

Hljómsveitin hefur vakið töluverða athygli síðustu mánuði frá því að lagið „Mér er drull“ kom fyrst út. Þær voru meðal flytjanda lokalags áramótaskaupsins um síðustu áramót og hafa komið víðs vegar fram. 

Blaðamaður Lífsins hafði samband við hljómsveitarmeðliminn Ragnhildi Veigarsdóttur og fékk að heyra meira um lagið:

Hver er innblásturinn að laginu?

Innblásturinn kemur úr lífi okkar og vinkvenna okkar. Flest sem hafa verið á lausu einhvern tímann ættu að þekkja þetta, en tilkoma samskiptamiðla hefur svo gert sum samskipti ennþá flóknari.

Hafið þið upplifað það í ykkar ástarlífi?

Það eru bara örfáir lukkunnar pamfílar sem hafa ekki lent á vegg, þurft að fara í gegnum óþolandi netsamskipti eða átt í samskiptaörðugleikum í tilhugalífinu. 

Þau munu ekki tengja við lagið og vera afar þakklát og glöð í hjartanu.

Hvernig var ferlið?

Hugmyndin að laginu var komin fyrir einhverju síðan. Bassinn í upprunalegu útgáfunni, sem Ragnhildur gerði, líktist mjög hjartslætti þannig að textinn varð um aðstæður þar sem hjartað slær kannski aðeins hraðar en venjulega. 

Lagið var svo notað í sýningunni VHS krefst virðingar, sem uppistandshópur Vigdísar, VHS, sýndi við góðar undirtektir í allan vetur. Það eru því rúmlega 3000 manns sem hafa nú þegar heyrt lagið í flutningi Vigdísar og Ragnhildar. Lagið átti nú ekki að fara neitt lengra en vegna fjölda fyrirspurna ákváðum við að gefa það út. 

Það er aðeins öðruvísi en hin FLOTT lögin.

Hvaðan koma textarnir ykkar yfirleitt?

Textarnir eru uppspuni, bara eins og skáldsögur. Það er auðvitað sannleikskorn í þeim öllum og hugmyndirnar spretta úr einhverju sem hefur komið fyrir okkur eða vinkonur okkar. Sum lögin fjalla samt bara um sammannlegar tilfinningar sem við höfum flest upplifað á einhverjum tímapunkti.

Hvað er framundan?

Við spilum út um allt í sumar! Það styttist í Bræðsluna, svo er það auðvitað Þjóðhátíð, Innipúkinn og annað skemmtilegt í ágúst.


Tengdar fréttir

FLOTT skrifar undir hjá Sony: „Við erum bara í skýjunum“

Hljómsveitin FLOTT hefur skrifað undir samning hjá útgáfufyrirtækinu Sony í Danmörku. Vigdís Hafliðadóttir, söngkona hljómsveitarinnar, segir hljómsveitarmeðlimi í skýjunum enda sé um mikla viðurkenningu að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.