Byggt og búið og Kringlan 35 ára Byggt og búið 13. ágúst 2022 09:00 Byggt og búið hefur starfað í Kringlunni frá upphafi eða í 35 ár. Í tilefni þess verða allar Fissler vörur á afslætti. Í dag 13. ágúst fagnar Kringlan 35 ára afmæli en ein af þeim verslunum sem hefur verið þar frá upphafi er búsáhalda- og gjafavöruverslunin Byggt og búið.
Byggt og búið opnaði upphaflega sem nokkurskonar angi af Byko í Kringlunni í ágúst 1987. Þar fundust upphaflega vörur eins og skrúfur og fleira til byggingarvinnu auk helstu nauðsynlegu búsáhalda en þaðan kemur nafnið, að þar finnist flest sem þarf bæði til að byggja og búa. Í Byggt og búið fundust upphaflega vörur til byggingarvinnu auk helstu búsáhalda. Auglýsingar frá versluninni frá árunum 1987 og 1989. Verslunin hefur alla tíð verið staðsett í suðurenda fyrstu hæðar Kringlunnar og frá upphafi verið mikilvægur hluti af því fjölbreytta vöruúrvali sem þar finnst. Í gegnum tíðina hefur ýmislegt breyst, meðal annars hafa orðið eigendaskipti og þó enn megi finna þar flest allt sem þarf í búið er lítið að finna í hillunum af vörum til byggingarvinnu. Í seinni tíð hafa skrúfurnar vikið fyrir gjafavöru en árið 2014 var þriðja hæð verslunarinnar tekin í gegn og vöruúrval gjafa- og lífstílsvöru stóraukið í kjölfarið. 40% afsláttur af Fissler vörum í dag Byggt og búið er í dag alhliða verslun þar sem flest allt fæst til heimilisnota. Þar má finna allt frá pottum og pönnum yfir í gæða kaffivélar og önnur minni heimilistæki. Í versluninni má einnig finna gríðarlegt úrval sérhæfðra eldhúsáhalda og bakstursvöru ásamt borðbúnaði og jafnvel Bluetooth hátalara og heyrnartól. Adamant húðin á Fissler pönnunum er háþróuð og viðloðunarfrí Mikið úrval af allskyns pottum og pönnum er að finna í Byggt og búið, þar á meðal Fissler sem er þýskt vörumerki sem framleiðir meðal annars vandaða potta og pönnur til heimilisnota. Fissler eiga heiðurinn af hinni vinsælu Adamant húðun sem er háþróuð og margverðlaunuð viðloðunarfrí húðun sem er sérstaklega auðveld í umhirðu því á hana má nota stáláhöld. Til þess að fagna 35 ára afmælinu verður 40% afsláttur af Fissler vörum í Byggt og búið í allan dag bæði í verslun og á byggtogbuid.is
Hús og heimili Verslun Kringlan Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira