Sköpunarútrás
„Ég byrjaði að vinna þessi tilteknu verk í upphafi síðasta árs. Þá fékk ég tækifæri til að vinna úti og hóf því rekstur Studio Andersen,“ segir Sandra og bætir við:
„Verkin eru gerð úr pappír og raða ég honum saman og bý til skugga, línur og áferð. Ég hef aðallega verið í námi og hef verið að læra ritlist en ég hef alltaf fengið mikla útrás í sköpun.“

Ferlið við sýninguna hefur gengið vel að hennar sögn.
„Þegar það kom að þessum verkum þá gat ég í rauninni setið tímunum saman að reyna að rífa hina fullkomnu beinu línu.
Ég var alltaf með blöðrur á fingrunum, þegar allt rif, skuggar, öll lög, fór að þýða miklu meira. Þetta myndaði eina fullkomlega ófullkomna heild. Ég byrjaði að sjá fegurðina í þessu ófullkomna. Allt þetta hefur tilgang í myndunum.“
Í dagskrá Menningarnætur segir: „Sandra H. Andersen skapar sína upplifun á lífinu með skúlptúrum úr pappír, sem fer lag eftir lag, rétt eins og manneskjan sjálf. Þar sem ekkert er fullkomið og það óvenjulega er fallegt.“

Lög manneskjunnar
„Öll þessi lög sem koma fram er svolítið eins og við sem manneskjur. Við höfum öll þessi lög af tilfinningum, hugsunum, upplifunum, og fleiru. Þetta gerir okkur okkur. Hvert lag hefur sinn tilgang. Sumt er á yfirborðinu, annað lendir undir. Við byggjumst upp lag fyrir lag. Mótun hvers og eins, með skuggum og skekkjum, tilfinningar sem finna sig ekki, reynsla sem raðast. Ekkert lag er eins. Hvert lag er mismunandi upplifun, tilfinning og hugsun, sem saman myndar heild,“ segir Sandra að lokum.
Verk Söndru verða til sýnis á Menningarnótt í nýjum sýningarsal Sigurðar Sævars á Barónsstíg, þar sem Argentína steikhús var áður til húsa. Nánari upplýsingar má finna hér.