Telja sig hafa fundið móður barnanna í ferðatöskunum Bjarki Sigurðsson skrifar 22. ágúst 2022 10:47 Lögreglan í Auckland fer með rannsókn málsins. AP/Dean Purcell Lögreglan í Seúl í Suður-Kóreu telur sig hafa fundið móður barnanna sem fundust látin í ferðatöskum í borginni Auckland í Nýja-Sjálandi í síðustu viku. Við krufningu kom í ljós að börnin voru á aldursbilinu fimm til tíu ára.
Greint var frá því í síðustu viku að tvö lík hafi fundist í ferðatöskum sem fjölskylda keypti á uppboði í Nýja-Sjálandi. Töskurnar höfðu þá verið í geymslurými í einhvern tíma en leigjandinn var hættur að borga leiguna af rýminu. Því var allt innihald þess sett á uppboð. Fjölskyldan uppgötvaði að líkin væru í töskunum þegar heim var komið og var lögregla kölluð á staðinn um leið. Talið er að börnin hafi verið myrt en fjölskyldan sem keypti töskurnar er ekki með stöðu grunaðra í málinu. Nú hefur lögreglan í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, sagst hafa fundið móður barnanna. Móðirin er nýsjálensk en af kóreskum uppruna. Samkvæmt The Guardian kom konan til Suður-Kóreu árið 2018 og hefur ekki yfirgefið landið síðan þá. Talið er að töskurnar hafi verið í geymslunni í nokkur ár og því telur lögreglan í Auckland að konan hafi farið úr landi eftir að töskunum var komið fyrir í geymslunni. Konan hefur ekki verið handtekin og verður ekki handtekin fyrr en lögreglan í Auckland óskar eftir því.
Nýja-Sjáland Erlend sakamál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira