Smástirni starfar með Öldu Music Ritstjórn Albumm skrifar 26. ágúst 2022 14:31 Steinar Fjeldsted hjá Alda Music og Smári Guðmundsson hjá Smástirni Plötuútgáfan Smástirni hefur hafið samstarf við Alda Music. Smástirni var stofnað árið 2018 en útgáfan er í eigu tónlistarmannsins Smára Guðmundssonar. Smástirni hefur gefið út nokkrar plötur og má þar nefna nýjustu plötu Fríðu Dísar, Lipstick On. Aðrar netútgáfur sem vert er að nefna eru t.d. Rolf Hautbentner Band og Trilogia. Alda Music er stærsta plötuútgáfa landsins og hefur margt af okkar þekktasta tónlistarfólki á sínum snærum. Í upphafi þessa árs keypti tónlistarrisinn Universal Music Alda Music og tengslanetið því orðið enn stærra í sniðum. „Það er virkilega frábært að ganga til liðs við Alda Music og fá gott teymi á bakvið það sem ég er að gera hjá Smástirni. Það eru spennandi tímar framundan og margt á döfinni” segir Smári. Það er í nógu að snúast hjá Smára í Smástirni þessa dagana sem spilar einnig á gítar með Fríðu Dís en á döfinni hjá þeim eru meðal annars tvennir útgáfutónleikar Lipstick On, þeir fyrri í Hljómahöll þann 20. október og þeir seinni á Sirkus þann 22. október, ásamt vínyl útgáfu plötunnar. Punkturinn er ekki settur niður þar því Fríða Dís og Smári stefna á aðra stóra útgáfu í haust með plötunni Fall River. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið