Lífið

Hverfur í Viðey í ágúst árið 1956

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bókarhöfundar með Viðey í bakgrunni.
Bókarhöfundar með Viðey í bakgrunni.

Reykjavík – glæpasaga eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Ragnar Jónasson rithöfund kemur út þann 25. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veröld bókaútgáfu.

Bókin hefst á því að í ágúst 1956 hverfur ung stúlka, Lára Marteinsdóttir, úr vist í Viðey. Eftir það spyrst ekkert til hennar. Áratugum saman hvílir mál Láru þungt á íslensku þjóðinni, það er reglulega rifjað upp í fjölmiðlum án þess að nokkuð komi fram sem skýri örlög hennar. Í ágúst 1986 fer hins vegar ungur blaðamaður á Vikublaðinu að grafast fyrir um þetta dularfulla mannshvarf – með ófyrirséðum afleiðingum.

Í sögunni bjóða Ragnar og Katrín lesendum í ferðalag á vit sumarsins þegar Reykjavík átti 200 ára afmæli, Bylgjan og Stöð 2 voru að fara í loftið og leiðtogafundur Reagans og Gorbatjovs stóð fyrir dyrum. Og þetta sumar komu líka fram óvæntar vísbendingar um afdrif Láru Marteinsdóttur.

Ragnar og Katrín segja í eftirmála bókarinnar að hugmyndin að samstarfinu kviknaði í hádegisverði í janúar 2020. „Skömmu eftir hádegisverðinn góða skall á heimsfaraldur. Líf allra breyttist og þá veitti það ákveðna sálarró að geta reglulega leitt hugann að Láru og hvarfi hennar.“

Ragnar hefur sent frá sér fjölda glæpasagna sem setið hafa efst á metsölulistum víða um lönd og hlotið margvísleg verðlaun. Þetta er aftur á móti fyrsta skáldsaga Katrínar en hún er á meðal helstu sérfræðinga í íslenskum glæpasögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.