Sýknaður af ítrekuðum kynferðisbrotum gegn dóttur sinni Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. september 2022 11:38 Maðurinn var sýknaður í héraðsdómi. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað karlmann af ítrekuðum kynferðisbrotum gegn dóttur hans. Að mati dómsins var framburður stúlkunnar í aðalatriðum trúverðugur en gerð er athugasemd við rannsókn lögreglu og rannsakendur sagðir hafa spurt stúlkuna leiðandi spurninga.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið kynferðislega á dóttur sinni á árunum 2010 til 2018 þegar stúlkan var sex til fjórtán ára gömul. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í fjölda skipta áreitt hana kynferðislega og haft við hana önnur kynferðismök en samræði, með því að hafa káfað á kynfærum stúlkunnar, innan og utan klæða, sleikt á henni kynfærin og sett fingur í leggöng hennar, látið hana snerta á sér getnaðarliminn, fróa sér og eiga við sig munnmök og látið hana sitja klofbega ofan á sér á baðherbergisgólfi þegar þau voru bæði nakin og þannig nuddað getnaðarlim sínum við ber kynæri hennar. Fram kemur í dómi að móðir stúlkunnar hafi í september 2020 tilkynnt föður stúlkunnar til barnaverndar og upplýsti í símtalinu að kvöldið áður hafi stúlkan upplýst hana um kynferðisofbeldi, sem faðirinn hefði beitt hana um árabil. Sama dag hélt lögregla að heimili móðurinnar þar sem af henni var tekin skýrsla og daginn eftir ritaði starfsmaður barnaverndarnefndar kærubréf til lögreglu. Fram kom í framburði móðurinnar að nokkrum dögum áður hafi hún, með dóttur sína viðstadda, uppgötvað að faðirinn hefði í óleyfi tekið út fjármuni af bankareikningi dótturinnar. Hún hafi hringt í barnsföður sinn og krafið hann um að endurgreiða fjármunina, sem námu um 700 þúsund krónum, annars myndi hún kæra hann til lögreglu. Dóttir hennar hafi heyrt samtalið, brotnað saman og sagt mömmu sinni frá ofbeldinu sem hann hafi beitt hana. Óljósar minningar um fyrstu brotin Fram kemur í dómnum að faðirinn og móðirin hafi hafið sambúð árið 1993 og eignast saman börn. Árið 2014 hafi hjónin skilið að borði og sæng en maðurinn flust á neðri hæð hússins sem þau deildu áður en móðirin fluttist búferlum árið 2015 með yngri börnin. Foreldrarnir hafi deilt forræði og börnin varið skólaleyfum hjá föðurnum, ekki síst yfir sumartímann árin 2015 til 2018. Stúlkan var yfirheyrð tveimur dögum eftir að málið hafði verið tilkynnt til lögreglu og sagði hún við yfirheyrslu að faðir hennar hefði misnotað hana í fjölda skipta. Þá sagðist hún hafa verið fimm eða sex ára þegar ofbeldið hófst og fjórtán ára þegar það hætti. Öll brotin, fyrir utan eitt, hafi verið framin inni á heimilinu. Þetta eina hafi verið í sumarbústað í eigu fjölskyldunnar. Þá kemur fram í dómnum að stúlkan hafi sagt föður sinn hafa brotið gegn sér í svefnherbergjum, gestaherbergi og stofunni þegar aðrir heimilismenn voru annað hvort ekki heima eða annars staðar í húsinu. Hún hafi yfirleitt verið klætt þegar brotin áttu sér stað en faðir hennar snert hana á ýmsan hátt. Faðir hennar hafi nefnt það við hana að þetta væri leyndarmálið þeirra. Vegna þess hve hún var ung hefði hún óljósar minningar um mörg fyrstu brotanna. Leitaði til læknis með sýkingar á kynfærasvæði Fram kemur í dómi að móðirin hafi í yfirheyrslu ekki sagst hafa orðið vör við óeðlileg samskipti föðurins við dóttur þeirra en dóttirin hafi við níu ára aldur verið fari að draga sig í eigin skel en auk þess stundum fengið æðisköst. Móðirin hafi ætlað að hegðunina mætti rekja til kynferðismisnotkunar af hendi eldri bróður stúlkunnar, þegar hún var við sex ára aldur og hann um tólf ára. Við skýrslutöku í þessu máli neitaði bróðirinn að hafa beitt systur sína slíku. Móðirinn sagðist þá aldrei tengt hegðunarvanda stúlkunnar við föðurinn enda aldrei haft grunsemdir um meint brot. Fram kemur í dómnum að stúlkan hafi í tvígang þurft að leita til læknis vegna sýkinga á kynfærasvæði, annars vegar þvagfærasýkingar og hins vegar á kynfærum. Þvagfærasýkingin hafi ekki verið talin óeðlileg en sýking á kynfærasvæði hafi verið óeðlileg. Stúlkan hafi þá verið í meðferð hjá Barnahúsi vegna vanlíðan og sýnt þar merki um þunglindi, kvíða og athyglisbrest. Auk þess hafi hún sýnt einkenni áfallstreytu. Þá hafi orðið breyting á hegðun hennar, þar á meðal að hún hafi einangrað sig félagslega, verið framtakslaus og viðhaft sjálfskaðandi hegðun. Stúlkan hafi þá farið að misnota áfengi til að deyfa vanlíðan sína og reynt sjálfsvíg sumarið 2021. Í kjölfar þess hafi stúlkan þurft innlögn á barna- og unglingageðdeild Landspítalans og þar á eftir verið flutt á Vinakot, búsetuúrræði fyrir ungmenni með fjölþættan vanda. Vegna sjálfskaðandi hegðunar hafi stúlkan þurft á sólarhringsvöktun að halda. Leiðandi spurningar rannsakenda komu við sakarmat Faðirinn neitaði sök bæði í skýrslutöku hjá lögreglu og fyrir dómi. Fram kemur í niðurstöðu dómsins að frásögn stúlkunnar hafi að mati hans verið trúverðug í aðalatriðum, þótt tímasetning og atburðarrás gætu hafa skolast til. Við sakarmat gæti dómurinn hins vegar ekki horft hjá því að spurningar rannsakara hafi á köflum verið harla leiðandi við upphaf lögreglurannsóknarinnar. Þá væru engin læknisfræðileg gögn til staðar sem aflað hafi verið við rannsókn lögreglu, fyrir utan þau gögn sem talin eru ahfa tengsl við ætluð kynferðisbrot eldri bróður stúlkunnar. Ættingjar hennar, móðir, tvíburabróðir og eldri systkini, hafi þá aldrei orðið vör við kynferðislega hegðun föður gagnvart stúlkunni. Þá hafi fyrrverandi eiginkona föðurins, sem bjó með honum í nokkur ár, ekki orðið vör við að kynhneigð hans hneigðist til barna eða ungmenna. Maðurinn var því sýknaður og bótakröfu stúlkunnar, sem nam fjórum milljónum króna, vísað frá dómi.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Fleiri fréttir Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna Sjá meira