Lífið

Þetta telur Gummi Emil mikilvægast að hafa á hreinu fyrir ræktina

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Gummi Emil er einkaþjálfari í World Class.
Gummi Emil er einkaþjálfari í World Class. vísir/arnar

Einkaþjálfarinn Gummi Emil mætti í Brennslunna í dag og fór þar yfir fimm mikilvægt atriði sem hann telur nauðsynlegt að hafa í huga þegar farið er af stað í ræktinni. 

Hann segir að fyrsta skrefið sé að kaupa líkamsræktarkort í World Class. „Síðan er það bara að hætta að vorkenna sér og hafa smá sjálfsaga,“ segir Gummi Emil. Hann segir að allt of margir mæti í byrjun vikunnar en ekki í lok vikunnar, þá séu miklu færri í ræktinni.

„Tvisvar í viku lágmark.“

Gummi Emil segir mikilvægt að taka allt til daginn áður, æfingarfötin og annað sem þarf.

„Síðan er það að drekka miklu meira vatn. Maður er í sjúkum vatnsskorti þegar þú vaknar, flestir eru að klikka á þessu,“ segir þjálfarinn meðal annars í þættinum.

„Númer eitt, borða meira og taka salt.“

Umræðuna um listann má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Segir galið að banna fólki að borða banana

Guðmundur Emil Jóhannsson er einn vinsælasti einkaþjálfari landsins þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára. Hann hafnaði á dögunum í þriðja sæti í einni stærstu vaxtarræktakeppni heims Arnold Classic.

Gummi Emil trúir ekki á boð og bönn

„Alltof algeng mistök hjá fólki, sérstaklega núna, er að byrja of hratt. Það er kannski búið að fá sér bjór þrjá til fjóra daga í viku og fer svo beint í átak,“ segir einkaþjálfarinn Guðmundur Emil í samtali við Brennsluna á FM957.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.