Katla Ómarsdóttir, Ýr Guðjohnsen og Thelma Tryggvadóttir lýstu líðan sinni í hlaðvarpinu „Eigin konur“ hjá Eddu Falak og Stundinni. Atburðarásir atvika eru ekki ræddar í viðtalinu.
Þær segja viðtal við Auðun í Ísland í dag í apríl síðastliðnum hafa orðið til þess að þær hafi langað að trúa að Auðunn hafi hafið betrunarferli sitt.
Ýr segir Auðunn hafa sagt sér að hann hafi leitað til Stígamóta. Hún segir það hafa komið illa við sig en hún hafi litið á Stígamót sem sinn griðastað, hún hafi leitað þangað sjálf.
„Síðan asnaðist ég til þess að fara aftur og ég spyr ráðgjafann minn bara hreint út, var bara brjáluð, ég var bara af hverju er hann hér? Og hún sagði mér að hann hefur aldrei komið þangað,“ segir Ýr.
„Já, þér var nauðgað“
Katla segist hafa leitað til Bjarkarhlíðar vegna framkomu Auðuns gagnvart henni. Þar hafi hún farið yfir atburðarásina og fengið staðfestingu á sinni upplifun.
„Ráðgjafinn sem að hlustaði á mig og ég var að tala um þetta við sagði bara: Já, þér var nauðgað,“ segir Katla.
Konurnar segja Auðunn ekki hafa beðið sig afsökunar á hegðun sinni gagnvart þeim. Þegar Auðunn sendi frá sér afsökunarbeiðni árið 2021 og viðurkenndi að hann hefði farið yfir mörk konu skrifaði Katla að það væri eins og að fá blauta tusku í andlitið.
Þessi afsökunarbeiðni er eins og blaut tuska í andlitið. Ég grét og grét og grét þegar ég loksins fékk kjarkinn í að drífa mig út eftir að hann talaði mig í það að gera eitthvað sem ég alls ekki vildi. Ég, ung og vissi ekkert og hann vinsæll og frægur.
— Katla Ómarsdóttir (@katla69) June 7, 2021
Þær taka fram að að einhverju leyti hafi þær langað að trúa frásögn hans og iðrun. Katla sagði Auðunn hafa reynt að hafa samband við maka hennar, en hann hafi ekki svarað skilaboðunum. Ýr segir Auðunn hafa haft samband við sig en ekki beðist afsökunar.
„Þetta er fokking þvæla sko, ég er ekki að djóka. Mann langar bara að öskra,“ segir Thelma um viðtalið í Ísland í dag. Hún hafi verið sextán ára þegar hennar samskipti við Auðunn, sem ekki eru rædd nánar í viðtalinu, áttu sér stað.
Auðunn undir verndarvæng Bubba
Þær lýsa því að þeim þyki erfitt að tónlistarmenn eins og Bubbi Morthens og Jón Jónsson hafi kosið að vinna með Auðunni eftir ásakanirnar.
„Bubbi semi á þetta land. Það elska allir Bubba og þá er ótrúlega auðvelt fyrir Auðun að koma fram undir hans verndarvæng einhvern veginn,“ segir Katla.
Hún veltir því einnig upp af hverju Bubbi standi ekki með þeim sem þolendum kynferðisofbeldis. Sérstaklega í ljósi þess að hann hafi sjálfur sagt frá því að hann hafi verið beittur slíku ofbeldi.
Aðspurðar hvernig þær myndu vilja sjá staðið með þolendum segja þær að tónlistarfólk ætti ekki að gefa út lag með Auðunni.
Ekki mannréttindi að vera tónlistarmaður
„Það er enginn sem að hefur í rauninni spurt hvort að það sé búið að biðja okkur afsökunar, hvernig okkur líði einhvern veginn með þetta,“ segir Katla.
„Það eru ekki mannréttindi að fá að vera tónlistarmaður á Íslandi,“ segir Katla.
Í umfjölluninni ræddi Stundin einnig við tvær konur sem Auðunn er sagður hafa verið ágengur við eða hegðað sér á óviðeigandi máta gagnvart. Ein þeirra kom ekki fram undir nafni en segist hafa verið fimmtán ára, í efsta bekk grunnskóla þegar Auðunn hafði fyrst samband við hana. Hann hafi þá verið 25 ára.
Hún segir hann hafa sent sér kynferðislegar myndir, þó ekki kynfæramyndir, en hann hafi verið meðvitaður um hversu gömul hún væri. Auðunn hafi boðið henni heim með sér eftir að hann spilað á menntaskólaballi í hennar skóla. Hún hafi ekki svarað því boði.
Viðtal Stundarinnar við konurnar má lesa hér. Einnig má hlusta á hlaðvarpið hér.
Fréttin hefur verið uppfærð.
