Lífið

Stjörnulífið: Árshátíðir, ofurhlaup og bleiki dagurinn

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Skjáskot/Instagram

Árshátíðir voru áberandi um helgina þar sem einstaklingar voru mættir í sínu fínasta pússi að fagna saman. Bakgarðshlaupið átti hug og hjörtu margra þar sem hlauparar kepptust um að standa einir eftir. Hinn árlegi bleiki dagur fór fram í vikunni og var samstaðan gríðarleg. 

Rapparinn Emmsjé Gauti gaf út lagið Klisja um helgina. Það er samið um eiginkonu hans Jovönu Schally. Viðstaddir felldu tár þegar Gauti frumflutti lagið í kirkjunni á brúðkaupsdaginn sjálfan í ágúst ásamt dætrum þeirra Apríl og Stellu. 

Útvarpsmennirnir Egill Ploder og Gústi B skemmtu sér vel á árshátíð Sýnar sem haldin var í Valsheimilinu á laugardaginn.

Áhrifavaldurinn Erna Kristín Stefánsdóttir er búin að gefa tvíbura drengjunum sínum nöfn. Þeir heita Adam Bassi og Emil Bassi.

Söngkonan Birgitta Haukdal fór í mæðgnaferð til London.

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson æfir sig fyrir komandi hnerra.

Söngkonan Jóhanna Guðrún átti afmæli í gær. Fylgjendur hennar fengu að upplifa nostalgíu í tilefni dagsins þegar birt var afmæliskveðja af henni að syngja Álfadís í kletti. Lagið er af fyrstu plötunni hennar sem hún gaf út á tíu ára afmælisdaginn sinn. Á myndinni má þó sjá hana með kærastanum sínum Ólafi Friðriki Ólafs­syni og dóttur þeirra.

Fylgjendur söngvarans Jógvans fengu líka að skyggnast inn í fortíðina þegar hann birti þessa mynd. 

Áhrifavaldurinn Erna Hrund Hermannsdóttir var svo sannarlega í bleiku á bleika daginn, þann 14. október. Samstaðan í samfélaginu var gríðarleg þar sem flestir náðu að bæta bleiku við fataval dagsins.

Söngvarinn Friðrik Ómar var starstruck þegar hann hitti Daníel Ágúst á Iðnó.

Leikkonan Kristín Péturs fór framhjá kirkju.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut naut sín vel á markaðsviðburði. 

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal bjó til sitt fyrsta reel ásamt kollega sínum Steinda jr. Vinirnir eru staddir erlendis þar sem þeir komu fram á árshátíð Deloitte. 

Hlauparinn Mari Järsk undirbjó sig fyrir bakgarðshlaupið með heldur óhefbundnum hætti.

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einars skaust að ná sér í kaffi.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hittust um helgina. 

Athafnakonan Tanja Ýr skilar kveðjum á klakann frá Miami.

Rithöfundurinn Linda Ben er hæst ánægð með lífið með Ragnari og fyllist þakklæti þegar hún skoðar brúðkaupsmyndirnar.

Tískugyðjan Elísabet Gunnarsdóttir fór í göngutúr með dóttur sína. 

Áhrifavaldurinn Gummi kíró hefur talað, tími treflanna er kominn.

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir og Alexander Alexandersson, einnig þekktur sem Lexi Blaze, birtu paramynd.

Það er búið að vera brjálað að gera hjá ráðherranum Áslaugu Örnu. Um helgina fór hún meðal annars á endurfundi með skólafélögunum úr Verzló.

Leikkonan Íris Tanja fór til Póllands að dansa með Hatara.

Söngkonan Bríet klifraði upp um alla veggi.

Fjölmiðlakonan Berglind Pétursdóttir mætti á árshátíð Sýnar um helgina með Þórði Gunnarssyni.

Tískugyðjan Ída Pálsdóttir rölti um Kyoto með kaffi, þar sem hún er búsett ásamt fjölskyldu sinni.

Þjálfarinn Telma Fanney elskar París þar sem hún er stödd með unnusta sínum Jökli Júlíussyni. Jökull er á tónleikaferðalagi með hljómsveitinni Kaleo. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Laxness, leður og Borat

Úlpurnar eru komnar á kreik, hrekkjavöku skreytingar eru mættar í verslanir og pumpkin spice latte er orðið aðgengilegt á kaffihúsum. Haustið er að ná hápunkti. Myndir frá ferðalögum eru enn áberandi á Instagram og virðast Íslendingar æstir í að ná nokkrum sólargeislum.

Stjörnulífið: Bleika slaufan, RIFF og Gyða Sól

Íslendingar eru búnir að draga fram úlpurnar og fara hvað á hverju að fjárfesta í sköfum fyrir veturinn. Haustlitir einkenna samt tískuna þessa dagana og þykkar kápur, treflar og kaffibollar eru algeng sjón á Instagram. Listamenn landsins eru að dæla út nýju og spennandi efni og haustið fer vel af stað. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.