Lífið

Fallegur flutningur Unu Torfa á laginu Ekkert að

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Una Torfadóttir söngkona.
Una Torfadóttir söngkona. Stöð 2

Söngkonan Una Torfa flutti lagið Ekkert að í söfnunarþættinum Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. Þátturinn var sýndur á Stöð 2 í gær.

Una kom líka fram á Iceland Airwaves í ár í fyrsta skipti. Í þættinum flutti hún lagið Ekkert að. Flutningur Unu var draumkenndur og fallegur. Hægt er að hlusta á hann í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Una Torfa - Ekkert að

Söfnunarþáttinn sjálfan má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Klippa: Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf - Þátturinn í heild sinni

Árlega leita yfir 700 konur til Kvennaathvarfsins í leit að ráðgjöf og öruggu skjóli. Sett hefur verið af stað söfnun fyrir stærra og hentugra húsnæði undir yfirskriftinni Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. 

Söfnunarnúmerin má sjá hér fyrir neðan: 

  • 907-1010- 1.000 krónur
  • 907-1030 -3.000 krónur
  • 907-1050-5.000 krónur

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög:

Kennitala 410782 – 0229 - Reikningsnúmer 515-14-7700


Tengdar fréttir

„Við vissum ekki hvort við myndum lifa þetta af“

„Meðan hann var í vinnunni þá var þetta allt í lagi, við nutum þess að vera saman. Við höfum alltaf verið mjög þétt fjölskylda þannig að tíminn sem við áttum saman á meðan hann var í vinnu var mjög ljúfur. Svo var það skýið sem kom í kringum hálf fjögur og helgarnar sem voru bara martröð“

Söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf

Í kvöld er sýndur á Stöð 2 söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. Þátturinn er sýndur í opinni dagskrá og verður einnig hægt að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan.

Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu komið í loftið

Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu hófst í dag en uppboðið er haldið í samvinnu við Gallerí Fold og Vísi. Má þar finna verk eftir okkar fremsta listafólk sem gaf málverk til málefnisins ásamt hópi einstaklinga sem gaf verk úr einkasafni.

Nauðsynlegt að það foreldri sem beitir ofbeldi leiti sér aðstoðar

Oft getur reynst erfitt að komast út úr aðstæðum ofbeldis í nánum samböndum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við Jenný Kristínu Valberg, sem komst út úr ofbeldissambandi fyrir nokkrum árum með aðstoð Kvennaathvarfsins og starfar nú sem ráðgjafi og aðstoðar fólk í sömu stöðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.