Lífið

Réði „paparazzi“ til að þykjast vera fræg á afmælinu sínu

Elísabet Hanna skrifar
Alyssa réði vinina til þess að þykjast vera paparaxxi ljósmyndarar.
Alyssa réði vinina til þess að þykjast vera paparaxxi ljósmyndarar. Skjáskot/Instagram

Afmælisstelpan Alyssa borgaði ljósmyndurum til þess að mæta í afmælið sitt, taka myndir, kalla á sig og þykjast vera fræg. Gamanið hófst þó á hrekkjavöku þegar ljósmyndarinn Kieran Murray og vinir hans klæddu sig upp sem „paparazzi“ og má segja að þeir hafi verið í hlutverkinu síðan.

Alyssa sá myndbönd frá vinunum á miðlinum TikTok sem sýndi þá í búningunum og hafði í kjölfarið samband við þá. 

Í myndbandinu frá afmælinu má sjá hvernig almennir borgarar töldu að um fræga manneskju væri að ræða þegar Alyssa mætti á svæðið og safnaðist fólk í kringum afmælisbarnið. Sumir gengu jafnvel svo langt að fá mynd með henni fyrir það eitt að vera fræg, þó að þau hafi augljóslega ekki haft hugmynd um það hver hún er, enda ekki þekktur einstaklingur.

@kieranknightley Alyssa hired us to be the Paparazzi on her 21st Birthday Who s next? #paparazzi #birthday #tiktokpaparazzi @actorjohntoon original sound - Kieran Murray

Kieran segir í samtali við PetPixel að pósthólfið hans sé að fyllast af beiðnum frá fólki sem er að óska eftir því að ráða þá í veislurnar sínar. Á TikTok hafa myndbönd vinanna að þykjast vera „paparazzi“ ljósmyndarar fengið meira en 2.2 milljónir áhorfa.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.