Lífið

Fólkið sem fann draumaheimilið við þjóðveginn austur úr borginni

Kristján Már Unnarsson skrifar
Elín Guðrún Heiðmundsdóttir og Snorri Guðmundsson búa á Bakka við Hólmsá.
Elín Guðrún Heiðmundsdóttir og Snorri Guðmundsson búa á Bakka við Hólmsá. Arnar Halldórsson

Þegar við fylgjum Hólmsá og Suðurlandsvegi austur úr borginni, upp með vatnasviði Elliðavatns, má finna leyndar perlur og áhugavert mannlíf. Svæðið geymir sögu nýbýla frá vaxtarárum Reykjavíkurbæjar eftir fyrri heimsstyrjöld og einnig stríðsminjar úr síðari heimsstyrjöld.

Þessu kynnumst við í þættinum Um land allt á Stöð 2, þeim seinni af tveimur um Elliðavatnssvæðið. Í kaflanum sem hér fylgir hittum við meðal annars Einar Gíslason, annan stofnanda ET-flutninga, sem nýlega keypti húsakost á Geirlandi ásamt eiginkonu sinni, Diljá Eyjólfsdóttur.

Einar Gíslason við gömlu húsin á Geirlandi.Arnar Halldórsson

Geirland byggðist upp sem nýbýli út frá Lækjarbotnum árið 1929. Þar voru kýr fram til ársins 1948 og sauðfé til ársins 1996 og útihúsin voru einnig nýtt sem hesthús.

Þéttur trjágróður umlykur húsið Bakka.Arnar Halldórsson

Við röltum um sælureitinn sem þau Elín Guðrún Heiðmundsdóttir og Snorri Guðmundsson hafa skapað sér við Hólmsá skammt frá Geithálsi. Þar keyptu þau sumarbústað sem þau breyttu í heilsársheimili og umbyltu upphaflega garðinum. Heimili þeirra kallast Bakki en þéttur trjágróður skýlir þeim frá Suðurlandsvegi.

Friðþór Eydal segir frá herminjum á Geithálsi. Fyrir aftan má sjá ferningslaga gerði sem var hluti af herfangelsi.Arnar Halldórsson

Á Geithálsi sýnir Friðþór Eydal okkur minjar um herbúðir þar sem skriðdrekasveit hélt til. Þar var einnig herfangelsi.

Þátturinn er endursýndur á Stöð 2 í dag, sunnudag, klukkan 15:25. Hér má sjá 11 mínútna kafla úr þættinum:


Tengdar fréttir

Segir borgarbúa lánsama að hafa aðgang að góðu vatni

„Þú lifir ekki án vatns. Og við erum alveg rosalega lánsöm hérna á höfuðborgarsvæðinu hvað við höfum góðan aðgang í gott vatn. En það þarf að halda því við,“ segir Hafsteinn Björgvinsson, umsjónarmaður vatnsverndarsvæðanna í Heiðmörk, en hann er starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur.

Bandaríkjaher faldi leynilega stjórnstöð í gígum Rauðhóla

Ein mikilvægasta herstöðin á Íslandi á árum síðari heimsstyrjaldar var starfrækt í Rauðhólum. Stöðin var vel falin ofan í gervigígum og þaðan var loftvörnum Íslands stjórnað. Nánast ekkert hefur verið ritað um þessa starfsemi opinberlega.

Spurt hvort fjarlægja ætti stíflu Elliðavatns eftir lokun virkjunar

Spurningar hafa vaknað um hvort fjarlægja eigi stíflu Elliðavatns og koma vatninu í upprunalegt horf, eftir að rekstri Elliðaárstöðvar var hætt. Líffræðingur sem vaktar Elliðavatn segir að slíkt þyrfti að hugsa vandlega og að söknuður yrði af vatninu.

Veiðiferð vísindamanna skilar vænum fiskafla úr Elliðavatni

Fiskstofnar í Elliðavatni dafna vel, samkvæmt árlegri úttekt vísindamanna, sem fengu hátt í þrjúhundruð væna silunga í net sín á einum sólarhring. Bleikju hefur þó fækkað, en sama þróun sést víðar á landinu, og er talin geta tengst hnattrænni hlýnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.