Skilorðsbundin refsing fyrir að afla kynferðislegra mynda af börnum Árni Sæberg skrifar 25. nóvember 2022 20:09 Maðurinn framdi brot sín á samfélagsmiðlinum Snapchat. Ungur karlmaður var í upphafi mánaðar dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa aflað og reynt að afla kynferðislegra ljósmynda af stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára.
Dómur í málinu féll þann 4. nóvember síðastliðinn en brotin sem maðurinn var sakfelldur fyrir voru framin á tímabilinu 8. til 20. febrúar 2021. Málið var upphaflega þingfest í janúar þessa árs og aðalmeðferð fór fram í júní. Dómur var hins vegar ekki kveðinn upp í kjölfar hennar og aðalmeðferð fór fram að nýju í byrjun október. Upphaflega var maðurinn, sem er nítján ára gamall, ákærður fyrir brot í þrettán liðum og tilraunir til brota í níu liðum. Við aðra aðalmeðferð féll ákæru í átta liðum vegna breytinga á almennum hegningarlögum sem leiddu til þess að falla ætti frá ákærum í þeim liðum þar sem brotaþolar voru eldri en fjórtán ára. Þá var fallið frá einum ákærulið þar sem brotaþoli neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi á ný og vildi ekki frekari afskipti lögreglu eða ákæruvalds. Greiddi rúmlega eina milljón króna fyrir „rassamyndir“ Rannsókn málsins hófst í febrúar árið 2021 þegar foreldrar stúlkna tilkynntu lögreglu ætluð kynferðisbrot gagnvart stúlkunum í gegnum samfélagsmiðla með dreifingu mynda gegn greiðslu. Foreldrar stúlknanna höfðu þá komist að því að þær hefðu verið í samskiptum við mann á samfélagsmiðlinum Snapchat sem hefði greitt þeim fyrir svokallaðar „rassamyndir“. Grunur féll fljótlega á manninn og við rannsókn fundust ljósmyndir af óþekktum stúlkum í síma hans og upplýsingar um umfangsmiklar millifærslur af bankareikningi hans. Maðurinn neitaði sök í yfirheyrslum og sagðist hafa átt peninga sem hefðu komið frá föður hans sem hann ætti ekki í góðu sambandi við. Hann hefði því ákveðið að gefa þá. Hann hefði því gefið þeim peninga sem beðið hefðu um þá. Tilgangur þess hafi ekki verið að fá myndir eða nokkuð annað í staðinn. Samkvæmt yfirliti yfir greiðslur sem brotaþolar mannsins, auk tveggja stúlkna, fengu frá manninum greiddi hann þeim alls 1.192.500 krónur í 124 færslum yfir tveggja vikna tímabil. Maðurinn greiddi hverri stúlku á bilinu fjögur þúsund krónur til tæplega 200 þúsund krónur. Fékk fjölda mynda af stúlkunum Maðurinn var sakfelldur í öllum ákæruliðum utan tveggja, ýmist fyrir að hafa fengið eða gert tilraun til að fá kynferðislegar myndir af stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára. Maðurinn bar fyrir sig að hafa ekki vitað aldur stúlknanna en dómurinn leit svo á að hann hefði sannanlega vitað að stúlkurnar væru undir fimmtán ára aldri eða látið sér aldur þeirra í léttu rúmi liggja. Þá segir í dóminum að framburður stúlknanna hafi verið afar trúverðugur og samhljóða í öllum aðalatriðum. Framburður mannsins hafi hins vegar ekki verið metinn trúverðugur. Nýlega orðinn átján ára þegar brotahrinan hófst Við ákvörðun refsingar mannsins var litið til þess að hann hafi aðeins nýlega verið orðinn átján ára gamall þegar hann framdi brotin sem hann var sakfelldur fyrir og að hann hafi ekki áður verið dæmdur til refsingar. Hins vegar var litið til þess til refsihækkunar, í samræmi við ákvæði hegningarlaga um kynferðisbrot gegn börnum, að hann hefði framið brot sín með kerfisbundnum hætti. Þá var einnig litið til þess að brotaþolar í málinu hafi verið stúlkur sem voru aðeins tólf til fjórtán ára þegar maðurinn framdi brot sín og að brotavilji hans hafi verið styrkur og einbeittur. Með vísan til þess var maðurinn dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Þá var hann dæmdur til þess að greiða foreldrum fimm stúlknanna miskabætur að fjárhæð 200 þúsund krónur fyrir þeirra hönd. Miskabótakröfum fjögurra foreldra var vísað frá dómi þar sem ákæruvaldið hafði fallið frá ákærum sem vörðuðu börn þeirra. Aðrir foreldrar gerðu ekki miskabótakröfu. Þá var manninum gert að greiða helming sakarkostnaðar málsins, en helmingur féll á ríkissjóð vegna þess að manninum varð ekki kennt um að tvær aðalmeðferðir fóru fram í málinu. Dóm héraðsdóms Reykjavíkur má lesa í heild sinni hér.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Samfélagsmiðlar Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Fleiri fréttir Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Sjá meira