Þegar Covid stóð sem hæst setti Borgarleikhúsið af stað staðgengla skipulag. Þá stóðu þau frammi fyrir því að líklegt væri að einhver af leikurunum væri að fara að veikjast á þeim tíma. Þegar staðan var sú var Árni Þór vel undirbúinn að taka við hlutverkinu en síðan er liðið ár og aldrei kom kallið.
Símtalið kom
Það var svo á fimmtudaginn síðasta sem símtalið kom. Leikarinn Björn Stefánsson, sem fer með hlutverk Utangarðs Bubba, varð veikur og endaði á spítala og gat ekki komið fram. „Ég fór upp í leikhús og tók stöðufund með þeim. Það var annaðhvort að kýla á þetta eða fella niður sýninguna. Ég fann að ég treysti mér vel í þetta verkefni og við tókum ákvörðun um að kýla á þetta,“ segir Árni Þór í samtali við Vísi.

Aðeins nokkrir klukkutímar til stefnu
Aðeins voru nokkrir klukkutímar til stefnu og við tók mikil vinna. Blessunarlega pössuðu allir búningarnir á hann og leikstjórinn Ólafur Egill fór vel með honum yfir allt það helsta. „Það var eiginlega ótrúlegt að þetta var allt í minninu, það kom mér sjálfum á óvart að textinn var bara til staðar,“ segir Árni um hlutverkið. Hann segist hafa verið mjög fókuseraður, stigið á sviðið og gleymt öllu öðru og hafi því varla verið var við stress í þessum aðstæðum.
„Ég er mjög glaður og þakklátur að hafa fengið þetta traust frá leikhúsinu, þetta var ótrúlega gaman og gekk mjög vel.“ Hann segir samvinnuna milli leikara, tæknifólks og starfsfólks leikhúsins sem þurfti að eiga sér stað til þess að svona gangi upp vera mikla og hún hafi verið til fyrirmyndar.

Mikil ábyrgð á leikurum
„Það var ótrúlega góð orka í salnum, ég er mjög sáttur og við erum öll ótrúlega glöð og sátt með þetta, held ég,“ segir hann og hlær. Kvöldið eftir endurtók hann leikinn. „Það gleymist oft að ræða þessa miklu ábyrgð sem er sett á leikara í stórum keyrslu sýningum.
Í Níu Líf eru leikararnir allir búnir að standa vaktina í 170 sýningum og það er ekkert grín. Þetta staðgenglakerfi er mjög sniðugt því það er ótrúlega gott að vita af því að einhver grípur mann ef það koma upp veikindi. Að sýningin falli ekki niður ef þú ert veik/ur/t,“ segir Árni að lokum en slíkt kerfi er algengt í leikhúsum erlendis.

„Ekki á færi hvers sem er að leika þetta eftir“
Árni Þór var ekki eini leikarinn sem stökk inn í sýninguna með litlum fyrirvara, því leikkonan Katrín Mist Haraldsdóttir hljóp í skarðið fyrir aðra leikkonu sem hafði veikst.
„Síðustu tvær helgar voru ævintýralegar og okkar starfsfólk sýndi framúrskarandi vinnubrögð á öllum vígstöðvum. Þegar tveir af aðalleikurum Níu lífa veiktust þá stigu Katrín Mist Haraldsdóttir og Árni Þór Lárusson inn með örskömmum fyrirvara, léku, sungu og dönsuðu og svo það sé ekki nóg þá spilaði Árni Þór líka á munnhörpu í Afgan. Það er ekki á færi hvers sem er að leika þetta eftir,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir, Borgarleikhússtjóri.
„Það þarf afl, vandvirkni og ekki síst jákvæðni til að stíga inn í svona stóra ábyrgð. Við erum svo heppin að vera hér með fullt hús af hæfileikaríku fólki sem segir já. Það var hrein unun að fylgjast með vinnu Árna Þórs og Katrínar Mistar. Þetta er töframáttur leikhússins í sinni tærustu mynd.“