Lífið

Edda Her­manns og Rikki Daða selja glæsi­hús í Laugar­dalnum

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason selja húsið.
Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason selja húsið. Samsett

Edda Hermannsdóttir markaðsstjóri Íslandsbanka og Ríkharður Daðason fjárfestir hafa sett glæsilegt heimili sitt í Laugardalnum á sölu. Um er ræða tæplega 280 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum við Sunnuveg.

Húsið var byggt árið 1971 og er með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Fram kemur í auglýsingu á fasteignavef Vísis að húsið sé á einum besta stað Reykjavíkur við útivistarsvæðið í Laugardal, með fallegu útsýni og stutt í alla þjónustu. Þá var húsið endurhannað og endurnýjað mikið frá árinu 2006.

Miklaborg

Þá segir í auglýsingunni að alrýmið sé sérlega bjart og rúmgott en það skiptist í stóra borðstofu og stofu og er með stórum gluggum í suður, austur og vestur. Útgengt er á stóra steinsteypta upphitaða verönd í suður með útsýni yfir Laugardalinn.

Miklaborg
Miklaborg

Þá er stór hjónasvíta með rúmgóðu fataherbergi og útgengt á timburlagða verönd í suðurátt. Baðherbergið er með fallegri innréttingu, stórum sturtuklefa með tveimur sturtuhausum, baðkari og gluggum og mögulegt er að setja upp gufu.

Miklaborg
Miklaborg
Miklaborg

Óskað er eftir tilboðum í eignina en brunabótamat nemur rúmum 93 milljónum og fasteignamat tæpum 123 milljónum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.