Lífið

Var komin með ellibletti 25 ára og tók þá húðina í gegn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lára er sannarlega sérfræðingur þegar kemur að húðinni.
Lára er sannarlega sérfræðingur þegar kemur að húðinni.

Lára G. Sigurðardóttir læknir og doktor í læknavísindum hefur rannsakað áhrif ýmissa fæðutegunda á húðina. Vala Matt ræddi við hana í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Þar kom í ljós að unglegt útlit húðarinnar virðist tengjast beint þeirri fæðu sem við neytum. Lára hefur sjálf reynslu af því hvernig breytt mataræði breytti hennar húð og einnig læknaði ýmsa kvilla hjá henni og hennar fjölskyldu.

Lára hefur nú ásamt hinum gríðarlega vinsæla heilsukokki Sollu Eiríks gefið út bók þar sem skoðað er hvaða matur og heilsuréttir eru líklegastir til þess að viðhalda unglegri húð. Lára rekur húðmeðferðastöðina Húðin.

„Þegar ég var tuttugu og fimm ára þá fór ég til húðlæknis og hann benti mér á að ég væri komin með ellibletti og húðskemmdir og þetta var vegna gamalla synda eins og sólböð. Ég var þarna að vinna sem flugfreyja og maður nýtti oft tímann að vera í sólinni, og maður brann til að mynda mikið. Síðan var í tísku að vera í ljósbekkjum. Það var meira segja ljósabekkur á vinnustaðnum sem ég vann á. Húðin er ekki bara stærsta líffærið okkar heldur einnig stærsta skynfærið og sinnir alveg gríðarlega mörgum hlutverkum,“ segir Lára og heldur áfram.

„Ég fór að hugsa hvað getur maður gert til að sinna húðinni sem besta, því ég er þarna bara tuttugu og fimm ára og komin með mjög slæmar skemmdir. Við vitum í dag að án þarmanna fær húðin ekki næringu og án lungna fær húðin ekki súrefni. Ég fór því að skoða hvernig næring og líferni tengist húðinni. Ég stofnaði síðan mína eigin húðmeðferðastöð og þar eru við að vinna með okkar skjólstæðingum í að fyrirbyggja og hugsa vel um húðina. Þessi bók er búin að vera í vinnslu í að verða fjögur ár.“

Í bók Láru eru fjölbreyttar uppskriftir sem fólk getur nýtt sér til að viðhalda góðri húð en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.