BYKO með ánægðustu viðskiptavinina sjötta árið í röð BYKO 19. janúar 2023 08:45 „Það er BYKO mikill heiður að taka við þessari viðurkenningu og við erum stolt af þeirri staðfestu sem endurspeglast í þessum margendurtekna árangri,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri BYKO. Stjórnvísi Íslenska ánægjuvogin kynnti fyrir helgi niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina fjörutíu íslenskra fyrirtækja í fjórtán atvinnugreinum á árinu 2022. Í flokki byggingavöruverslana hlaut BYKO hæstu einkunnina sjötta árið í röð og hefur því sigrað óslitið í þeim flokki frá upphafi mælinga í honum.
Síðustu þrjú árin hefur forskot BYKO á keppinautana flokkast undir það sem aðstandendur Íslensku ánægjuvogarinnar skilgreina sem marktækan mun. Það þýðir að BYKO getur lýst sig sem afdráttarlausan sigurvegara í sínum flokki og skartað gylltu merki Íslensku ánægjuvogarinnar; sjálfum „gullverðlaununum“ sem í allri keppni hljóta að vera æðsta takmarkið. „Það er BYKO mikill heiður að taka við þessari viðurkenningu og við erum stolt af þeirri staðfestu sem endurspeglast í þessum margendurtekna árangri,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri BYKO. „Við erum þakklát starfsfólki okkar fyrir þeirra frábæru frammistöðu sem og viðskiptavinum okkar fyrir að skynja metnaðinn sem liggur að baki starfseminni og að verðlauna okkur með þessari kærkomnu einkunnargjöf. Við getum nú með stolti lýst því yfir að eiga ánægðustu viðskiptavinina á þeim markaði sem við keppum á en um leið er þetta okkur hvatning til að gera enn betur til að standa undir væntingum og tryggð okkar viðskiptavina,“ segir Sigurður. BYKO fagnaði 60 ára afmæli á árinu 2022 og að sögn Sigurðar hafa fjölmargar nýjungar litið dagsins ljós á síðustu misserum; má þar nefna sjálfsafgreiðslukassa með reikningsviðskiptum, rafrænt BYKO-kort, rafrænt beiðnakerfi, stórbætta vefverslun, gagnadrifnar lausnir og rafræn mælaborð. „Heildræn stefna BYKO, þar sem viðskiptavinurinn er miðja alls, gerir vörumerkið einstakt og aðgreinir okkur frá samkeppninni því við viljum bjóða bestu heildarupplifun viðskiptavinarins, bæði í framkvæmdum og við fegrun heimilisins. Mikil áhersla er lögð á gagnadrifna markaðssetningu sem byggir á kauphegðun og raunþörfum viðskiptavina. Slagorðið „Gerum þetta saman“ og vörumerkjaloforðið „Það er einfaldast að versla í BYKO“ eru eftir sem áður leiðarljós í öllu okkar markaðsstarfi. Við höfum gert þetta saman í 60 ár og við hlökkum til framtíðarinnar,“ segir Sigurður að lokum. Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og framkvæmd mælinga 2022 var í höndum Prósents.
Neytendur Verslun Íslenska ánægjuvogin Mest lesið Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira