Pebble Beach golfvöllurinn þurfti að breyta stórhættulegri golfholu hjá sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2023 15:00 Jordan Spieth slær á brúninni á áttundu holu Pebble Beach golfvallarins í fyrra. Getty/Kent Horner Bandaríski kylfingurinn Jordan Spieth þótti sýna mikið hugrekki á Pebble Beach golfvellinum í fyrra en óaðvitandi skapaði hann líka með því vandamál.
Spieth tók ekki mark á ráðum kylfusveins síns sem vildi að hann sætti sig við vítið og reyndi frekar að slá boltann af brúnni á miklum klettavegg. Spieth setti sig þar í mikla hættu enda þurfti ekki mikið til að hann dytti niður eða að það myndi hrynja undan fótum hans. Jordan Spieth s daring cliff shot causes changes to Pebble Beach s 8th hole https://t.co/sLw4BY2ymE— SportsDayDFW (@SportsDayDFW) February 2, 2023 Spieth var þarna að keppa á Pro-Am mótinu á Pebble Beach golfvellinum í Kaliforníu fylki. Spieth tókst reyndar að bjarga parinu en talaði um það eftirá að hann sæi eftir því að hafa tekið svona mikla áhættu. Þetta högg hans var ekki fyrir lofthrædda eins og sjá má hér fyrir neðan. "This is downright terrifying right now." This shot from Jordan Spieth was quite the situation. pic.twitter.com/sq04R96GXQ— Golf on CBS (@GolfonCBS) February 5, 2022 Forráðamenn golfvallarins á Pebble Beach lentu hins vegar í því að margir kylfingar reyndu að leika eftir þetta skot. Þeir settu sig auðvitað í mikla hættu með því sem var ekki gott fyrir neinn. Það styttist í óhapp eða slys og eitthvað varð að gera. Umsjónarmenn golfvallarins tóku því þá ákvörðun að færa vallarmörkin lengra frá brúnni og auka grasið fyrir utan völlinn þannig að litlar líkur væru á því að golfboltarnir færu þangað.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira