Eva Ollikainen áfram aðalhljómsveitarstjóri Sinfó Atli Ísleifsson skrifar 7. febrúar 2023 14:33 Lára Sóley Jóhannsdóttir og Eva Ollikainen undirrituðu nýjan samning á æfingu í Eldborg. Sinfó Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur endurnýjað samning sinn við Evu Ollikainen sem gegnt hefur stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda síðastliðin þrjú ár. Samningurinn hefur verið framlengdur til loka starfsársins 2025-26.
Í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveit Íslands segir að Eva muni að jafnaði stjórna hljómsveitinni á sex til átta tónleikum á hverju starfsári auk þess að stjórna sveitinni á tónleikaferðum innanlands sem utan, meðal annars í Bretlandsferð sem farin verður í apríl á þessu ári. „Auk þess mun Eva áfram stýra hljómsveitarstjóra-akademíu Sinfóníuhljómsveitar Íslands en hún hafði einmitt frumkvæði að stofnun hennar árið 2021. Eva Ollikainen stundaði tónlistarnám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki og hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim fyrir innblásna hljómsveitarstjórn. Hún hefur stjórnað mörgum virtustu hljómsveitum heims, m.a. Útvarpshljómsveitunum í Finnlandi og Svíþjóð, Fílharmóníusveitunum í Helsinki og Stokkhólmi og Sinfóníuhljómsveitinni í Vínarborg. Þá hefur hún stjórnað óperusýningum við Dönsku þjóðaróperuna og Staatskapelle í Dresden. Á síðasta ári stjórnaði Eva Fílharmóníusveit breska ríkisútvarpsins BBC á PROMS-tónlistarhátíðinni í Lundúnum og Fílharmóníusveit Los Angeles í fyrsta sinn á tvennum tónleikum í Hollywood Bowl og í Walt Disney Hall,“ segir í tilkyningunni. Náðu tónlistarlegri tengingu um leið Haft er eftir Evu að það sé sér enn í fersku minni þegar hún kom í fyrsta sinn til þess að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2005. „Ég man hvernig við hljómsveitin náðum tónlistarlegri tengingu um leið – þetta var eitt af bestu augnablikum ævi minnar. Þessi djúpa tónlistarlega tenging hefur haldist traust. Margir af þeim sem spila með hljómsveitinni í dag voru ekki byrjaðir þá, og einhverjir hafa horfið á braut, en andi hljómsveitarinnar er enn hinn sami. Ég nýt hverrar sekúndu í starfi mínu með þessu frábæra tónlistarfólki og hlakka til allra töfrastundanna sem við eigum framundan í tónlistinni. Ég vil þakka tónlistarmönnum, starfsfólki og stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir traustið.“ Tók við á sérstökum tíma Þá er haft eftir Láru Sóleyju framkvæmdarstjóra að Eva hafi tekið við sem aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi á afar sérstökum tíma, í miðjum heimsfaraldri. „Þó svo að fyrstu tvö starfsár hennar í þessum hlutverkum hafi verið krefjandi, færðu þau samvinnu okkar líka dýrmæt tækifæri. Eva vann náið með hljómsveitinni í lengri tímabil en gengur og gerist og myndaði mikilvæg tengsl við hljóðfæraleikara og samstarfsfólk. Eva átti frumkvæði að því að stofnuð var hljómsveitarstjóra-akademía haustið 2021 þar sem ungt og efnilegt tónlistarfólk fær tækifæri til þess að spreyta sig í hljómsveitarstjórn. Ég er þess fullviss að þetta mikilvæga tækifæri sem unga kynslóðin fær, mun skila okkur miklu til framtíðar. Eva er einstök listakona sem gefur mikið af sér, bæði til samstarfsfólks, samfélagsins og ekki síst til okkar dyggu áheyrenda. Hún hefur mikinn metnað fyrir íslensku tónlistarlífi og hefur náð frábærum árangri með hljómsveitinni. Við hlökkum til að vaxa og dafna með Evu á komandi árum,“ segir Lára Sóley.
Sinfóníuhljómsveit Íslands Tónlist Harpa Mest lesið Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Lífið Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Lífið samstarf Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun Fleiri fréttir Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Magnús nýr formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur „Erfiðasti skóli sem ég hef farið í“ Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Sjá meira