Flutti inn 55 eða 47 pakkningar af kókaíni innvortis Atli Ísleifsson skrifar 8. febrúar 2023 07:43 Konan kom til landsins með flugi 13. nóvember síðastliðinn. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla um 700 grömmum af kókaíni með flugi til landsins í nóvember síðastliðinn.
Konan var ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot og í ákæru kemur fram að konan hafi flutt efnin, sem hafði 75 til 84 prósent styrkleika, í samtals 55 pakkningum sem falin voru innvortis. Konan játaði sök í málinu en sagði að um 47 pakkningar hafi verið að ræða, ekki 55, og vildi hún því meina að magn efnisins hafi verið eitthvað minna en fram kom í ákæru. Að áliti dómsins leikur réttmætur vafi á því hvort innfluttar pakkningar hafi verið 55 eða 47 talsins. Í dómnum er ekki tekið fram hvaðan konan var að koma þegar hún kom með flugi til Keflavíkurflugvallar þann 13. nóvember síðastliðinn. Fram kemur í dómnum að konan hafi ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Ekki verði ráðið að hún hafi verið eigandi fíkniefnanna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Konan var dæmd til tíu mánaða fangelsisvistar, en til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem konan hafði sætt frá komunni til landsins. Þá er henni gert að greiða um tvær milljónir króna í sakarkostnað.
Dómsmál Fíkniefnabrot Keflavíkurflugvöllur Smygl Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Sjá meira