Lífið

„Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum?“

Snorri Másson skrifar

Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag, þar sem fjallað var um þau óljósu tilmæli frá stofnunum samfélagsins til almennings, að forðast utanlandsferðir. Slíkar ráðstafanir eigi að styrkja gengi krónunnar.

Spurt var hvort grundvallarmunur væri á þeirri viðleitni íslenskra yfirvalda að koma í veg fyrir fólksflutninga til Vesturheims á 19. öld og þeirri viðleitni stjórnvalda nú, að varna almennum borgurum vegar út fyrir landsteinana í saklaust frí.

„Við eigum að hafa það mjög skýrt. Það er göfugt að fara ekki til útlanda,“ segir Jakob Birgisson í Íslandi í dag, sem sjá má að ofan.Vísir

Jakob segir að vísu bagalegt að stjórnvöld séu búin missa slíka stjórn á efnahagsmálunum að þau þurfi að beina þessum tilmælum til Íslendinga, en að engu að síður séu tilmælin sem slík göfug.

„Við eigum að hafa það mjög skýrt. Það er göfugt að fara ekki til útlanda. Fólk er að fara með börn til útlanda. Ég meina í alvöru. Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum? Þau hafa ekkert að gera í útlöndum. Það er vesen að fara með þau. Það er dýrt. Það er ekkert skemmtilegt við það - og börnin hafa raunar ekkert gaman af því sjálf,“ segir Jakob.

Jakob tók dæmi af Þórólfi Gíslasyni kaupfélagsstjóra í Skagafirði og lofaði hans nálgun í málefnum utanlandsferða. Í viðtali árið 2019 greindi Þórólfur frá þeirri mögnuðu staðreynd, að hann hafði þá ekki farið til útlanda í fimmtán ár; frá 2004. Ekki stafar kyrrsetan af fjárskorti enda kaupfélagsstjórinn að vænta má sterkefnaður maður.

„Ég held að við ættum að taka hann okkur til fyrirmyndar í þessum efnum,“ segir Jakob.

Hér er tilvitnun í Þórólf úr Morgunblaðsviðtalinu: „Það á að hvetja til sparnaðar hér, og gott ef þú get­ur verið bú­inn að eign­ast þitt hús­næði um miðjan ald­ur, til að geta átt það sem vara­sjóð. Áður var það þannig að fólk út­skrifaðist úr skóla og fór beint að vinna, en nú fara all­ir í sex mánaða heims­reisu. Þetta er ákveðinn flótti frá því að taka þátt í sam­fé­lag­inu.“

Jakob Birgisson er reglulegur gestur í Íslandi í dag á miðvikudögum á Stöð 2.Vísir

Tengdar fréttir

Ásgeir hefur aldrei komið til Tene

Seðlabankastjóri telur umdeilda vaxtahækkun á viðkvæmu stigi í kjaraviðræðum hafa verið heiðarlega og samningsaðilar hafi þannig vitað hverju þeir væru að ganga að. Hann segir hættulegt að hlusta á hagsmunaaðila og telur að verðbólgan hafi náð hámarki. Fólk sé viðkvæmt fyrir gagnrýni á utanlandsferðir til Tenerife. Sjálfur hefur hann aldrei komið þangað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.