Lífið

Gefin saman af Siggu Kling í brjáluðu veðri

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá athöfninni í Álftanesfjöru.
Frá athöfninni í Álftanesfjöru. aðsend

Eftir þrjár tilraunir í brjáluðu veðri og gulri viðvörun gaf spákonan og gleðigjafinn Sigga Kling saman sexfalda heimsmeistarann í lethwei, Dave Leduc frá Kanada og Irinu Terehova fyrirsætu- og raunveruleikastjörnu í Álftanesfjöru.

Parið er upprunalega frá Rússlandi en búsett í Tyrklandi og kom til Íslands á dögunum. Þau höfðu samband við Siggu Kling með það fyrir augum að fá hana til þess að gefa þau saman. Sigga Klingtók að sjálfsögðu vel í það.

Dave og Irina klæddust íslenskum þjóðbúningum.

Með þeim Siggu, Dave og Irinu var svaramaðurinn Sigurgeir Svanbergsson frá Iceland Combat Arts. aðsend

Sigga Kling gaf parið saman í Álftanesfjörunni sem er heilög fjara, snýr beint að Snæfellsjökli og er hvítur sandur í fjörunni. „Svakalegur máttur og mikil orka“ er á þessum stað að sögn Siggu Kling.

Hér að neðan má sjá myndband af bardagakappanum en hann hélt námskeið í bardagalist hjá Iceland Combat Arts á dögunum:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.