Í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert var lagið Kysstu mig tekið fyrir en flytjendur eru stuðsveitin Inspector Spacetime og Unnsteinn Manúel.
Inspector Spacetime er búin að stimpla sig inn í íslensku tónlistarsenuna á síðustu árum og eru lög sveitarinnar vinsæl á dansgólfum landsins. Föstudaginn 24. febrúar kom lagið Kysstu mig út þar sem Inspector Spacetime gengur í eina sæng með margrómaða tónlistarmanninum Unnsteini Manúel.
„Við höfðum lengi verið spennt fyrir hugmyndinni að einhverju samstarfi,“ segja meðlimir Inspector Spacetime í samtali við blaðamann.

„Við pældum í mörgum en það var ekki fyrr en einhver minntist á Unnstein þegar allt small saman. Við ákváðum að heyra bara í honum, spurðum hvort hann hafði áhuga og sendum demó. Hann sýndi mikinn áhuga frá byrjun sem gerði okkur mun spenntari fyrir laginu, þar sem við vorum mögulega að fara fá Icelandic pop legend sem okkar fyrsta feature.
Stuttu síðar var hann kominn í stúdíóið til okkar sem var bæði æðislegt og súrrealískt. Það gekk ótrúlega vel og það var mjög þægilegt og skemmtilegt að vinna með honum. Að heyra manninn radda sjálfan sig var ótrúlegt.“
Þau segja lagið í grunninn algjört ástar popplag í svokölluðum jungle búning.
„Þetta er kraftmikið lag til að öskur syngja með á góðu dansgólfi. Við gerðum nokkrar tilraunir með lagið, prófuðum til dæmis að gera 80's útgáfu, en enduðum síðan á þessu og við elskum það.“
Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá þessari stuðsveit en ásamt því að vera að spila á fullu eru þau að klára breiðskífu og plana túr.
„Líkt og fyrri verk okkar er væntanleg plata ástaróður til danstónlistarhefðarinnar,“ segja þau að lokum.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: