Heimsókn í skóla: Eva hræðist unglingana í MS Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. mars 2023 14:30 Eva Margrét Guðnadóttir kíkti á nemendur MS fyrir viðureign skólans gegn FVA á Framhaldsskólaleikunum. RÍSÍ Fyrsta viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleik Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem MS og FVA áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.
Eva skellti sér fyrst í Menntaskólann við Sund þar sem hún furðaði sig, eins og kannski svo margir, á því hvar þessi margumrædda sundlaug væri eiginlega. Á milli þess sem Eva spilaði borðtennis og reyndi að forðast unglinga ræddi hún einnig við þau Emmu Lísu, Símon og Jón Jökul sem kepptu fyrir hönd MS í FRÍS. MS þurfti þó að lokum að sætta sig við tap gegn FVA síðastliðinn miðvikudag og skólinn er því úr leik. Heimsókn Evu í MS má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Heimsókn í skóla: Eva hræðist unglingana í MS Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Menntaskólinn á Ásbrú og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eigast við í átta liða úrslitum í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Bein útsending hefst klukkan 19:30.
Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti