Heimsókn í skóla: Eva leitar að Bjarna Ben í FG Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. mars 2023 18:15 Eva Margrét Guðnadóttir kíkti á krakkana í FG. Önnur viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleik Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem MÁ og FG áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.
Eva skellti sér í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og vonaðist þar til að rekast á Bjarna Ben elda kjötbollur í mötuneyti skólans. Á milli þess sem Eva tapaði í skák og leitaði að fjármálaráðherra Íslands ræddi hún einnig við liðsmenn Fjölbrautaskólans í Garðabæ sem kepptu fyrir hönd skólans í FRÍS. Án þess að uppljóstra of miklu úr myndbandinu hér fyrir neðan er þó skemmst frá því að segja að Eva rakst ekki á hæstvirtan fjármálaráðherra. FG hafði að lokum betur gegn MÁ síðastliðinn miðvikudag og skólinn er því á leið í undanúrslit. Heimsókn Evu í MÁ má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Heimsókn í skóla: Eva leitar að Bjarna Ben í FG Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Fjölbrautaskóli Suðurlands eigast við í átta liða úrslitum í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Bein útsending hefst klukkan 19:30.
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti