Það eru útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 sem standa í sameiningu fyrir Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri á að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.
Boðið var upp á sannkallaða tónlistarveislu því fram komu Friðrik Dór, Una Torfa, Júlí Heiðar, Reykjavíkurdætur, Superserious, Emmsjé, Gauti, Klara Elias, Eyþór Ingi og Babies, Daniil og Saga Matthildur. Kynnar kvöldsins voru þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir.
Dýrð í dauðaþögn kosið lag ársins
Það var tónlistarkonan Bríet sem hlaut flest verðlaun kvöldsins en hún var bæði söngkona ársins og flytjandi ársins, ásamt því að vera flytjandi lags ársins, Dýrð í dauðaþögn. Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór átti einnig gott kvöld því hann var kosinn söngvari ársins, ásamt því að eiga plötu ársins, Dætur.

Í ár var kynntur til leiks nýr verðlaunaflokkur, lagahöfundur ársins, og var það Bubbi Morthens sem hlaut þau verðlaun.
Egill Ólafsson heiðraður
Þá hlaut söngvarinn Egill Ólafsson sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistarsenu í gegnum tíðina.

Rapparinn Daniil var kosinn nýliði ársins en Lífið á Vísi tók stórskemmtilegt viðtal við hann nú á dögunum sem sjá má hér að neðan.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir sigurvegara kvöldsins og alla sem hlutu tilnefningu.
Lag ársins
Dýrð í dauðaþögn - Bríet
Einnig tilnefnd:
- Upp á rönd - Hjálmar og GDRN
- Bleikur og Blár - Friðrik Dór
- Emmsjé Gauti - Klisja
- Lengi lifum við - Jón Jónsson
- Ástin heldur Vöku - Júlí Heiðar
- Bye bye honey - Superserious
- Aumingja þuríður - Ólafur Kram
Flytjandi ársins
Bríet
Einnig tilnefnd:
- GDRN
- Systur
- Friðrik Dór
- Emmsje Gauti
- Júlí Heiðar
- Skálmöld
- Dr Gunni
Söngkona ársins
Bríet
Einnig tilnefndar:
- Sigrún Stella
- Stefanía Svavars
- GDRN
- Klara Elias
- Karen Ósk
- Margrét Rán
- Brynhildur Karls
Söngvari ársins
Friðrik Dór

Einnig tilnefndir:
- Krummi
- Jónas Sig
- Ásgeir Trausti
- Aron Can
- Júlí Heiðar
- Birgir Hansen
- Júníus Meyvant
Plata ársins
Friðrik Dór - Dætur
Einnig tilnefnd:
- Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn 10 ára / Time on my hands
- Gdrn og Magnús Jóhann - 10 íslensk sönglög
- Vök - Vök
- Júníus Meyvant - Guru
- Jói P - Fram í rauðan dauðann
- Kvikindi - Ungfrú Ísland
- Snorri Helgason - Víðihlíð
Nýliði ársins
Daniil
Einnig tilnefnd:
- Árný Margrét
- Silja Rós
- Una Torfa
- Elín Hall
- Stefán Óli
- Kvikindi
- Ormar
Myndband ársins
Turn This Around - Daugthers of Reykjavík
Einnig tilnefnd:
Cold Feet - Bríet
Borderland - Ásgeir Trausti
Bolero - GusGus
Sorrowful Soil - Björk
Eyjanótt - Klara Elias
Jelly Belly - BSÍ
Slaki Babarinn - BlazRoca og Egill Ólafs
Lagahöfundur ársins
Bubbi, fyrir lögin Tárin falla hægt, Ennþá er tími, Ertu góður og Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu).
Einnig tilnefnd:
- Friðrik dór og Pálmi Ragnar fyrir Bleikur og Blár, Friðrik Dór og Þormóður fyrir Þú.
- Klara Elias, Alma og James Wong, fyrir lagið Eyjanótt.
- Gauti Þeyr Másson og Þormóður, fyrir lagið Klisja.
- Bríet og Pálmi Ragnar, fyrir lagið Flugdreki.
- Hjálmar og GDRN, fyrir lagið Upp á rönd.
- Björn Jörundur, fyrir lagið Reiknaðu með mér.
- Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, fyrir lagið Með hækkandi sól.
- Reykjavíkurdætur, fyrir lagið Tökum af stað.
- Margrét Rán Magnúsdóttir (VÖK) Something Bad, No coffe at a funeral og Lost in the weekend.
Upptökustjórn og hljóðblöndun - Valið af útvarpsfólki
Pálmi Ragnar Ásgeirsson
Kítón verðlaunin - Valið af stjórn Kítón
Hildur Kristín Stefánsdóttir
Einnig tilnefndar:
- Gugusar
- Salka Valsdóttir
- Herdís Stefánsdóttir
- Margrét Rán Magnúsdóttir
Heiðursverðlaun
Egill Ólafsson
Hlustendaverðlaun Bylgjunnar, FM957 og X977 2023 eru í samstarfi við ON og Gull léttöl.