Leikmanna- og þjálfaraferli Arnars með landsliðinu lauk á sama stað Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2023 14:01 Arnar Þór Viðarsson á hliðarlínunni í sínum síðasta leik sem landsliðsþjálfari. getty/Alex Nicodim Arnar Þór Viðarsson stýrði íslenska karlalandsliðinu í síðasta sinn þegar það vann Liechtenstein, 0-7, á sunnudaginn. Leikurinn fór fram á sama stað og síðasti landsleikur hans sem leikmanns.
KSÍ tilkynnti í gær að Arnari hefði verið sagt upp störfum sem landsliðsþjálfara. Hann tók við landsliðinu í lok árs 2020 og stýrði því í 31 leik. Aðeins sex þeirra unnust. Síðasti leikur Arnars sem landsliðsþjálfara var stórsigurinn á Liechtenstein, 0-7, í undankeppni EM 2024 um helgina. Leikurinn fór fram á Rheinpark vellinum í Vaduz, höfuðborg Liechtenstein. Svo vill til að síðasti landsleikur Arnars sem leikmanns íslenska landsliðsins var einnig á Rheinpark vellinum 17. október 2007. Ísland tapaði leiknum með þremur mörkum gegn engu en þetta er almennt talin ein svartasta stund í sögu landsliðsins, kannski ásamt 14-2 tapinu fyrir Danmörku á Parken 1967. Arnar á því eflaust ekkert alltof góðar minningar frá Rheinpark vellinum þar sem bæði leikmanna- og þjálfaraferli hans með landsliðinu lauk. Þess má þó geta að þrír af sex sigrum Arnars sem landsliðsþjálfara komu gegn Liechtenstein. Tveir í undankeppni HM 2022 og svo stórsigurinn á sunnudaginn.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Ísland - Tyrkland | Svara strákarnir fyrir Serbatapið? Körfubolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham Breiðablik - Stjarnan | Grannaslagur í Kópavogi Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Sjá meira