Öll tilboð í nýja Hamarshöll talin of há Árni Sæberg skrifar 7. apríl 2023 15:49 Hamarshöllin í Hveragerði áður en hún hrundi í óveðri. Meirihluti bæjarstjórnar vill ekki reisa annað uppblásið íþróttahús. VÍSIR/MAGNÚS HLYNUR Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á dögunum að hafna öllum tilboðum sem bárust í byggingu nýrrar Hamarshallar. Ástæðan er sögð sú að öll tilboð sem bárust hafi verið of há, að teknu tilliti til fjárhagsáætlunar bæjarins.
Í fundargerð fyrir fund bæjarstjórnar sem haldinn var þann 3. apríl síðastliðinn segir að tilboðin hafi verið fimm talsins og hljóðað upp á frá rúmlega 1,2 milljarða króna til ríflega 2,4 milljarða króna. Kostnaðaráætlun fyrir verkið hafi verið 1,1 milljarður króna. Einungis munar 132 milljónum á kostnaðaráætlun og lægsta boði, sem var frá Stárgrindarhúsum ehf.. Þá samþykkti bæjarstjórn að nýta heimild laga um opinber innkaup til þess að efna til samkeppnisútboðs eða samkeppnisviðræðna við bjóðendur sem uppfylltu hæfiskröfu útboðsskilmála. Bæjarstjóra var falið að hefja þær viðræður strax. Sjálfstæðismenn sátu hjá Sú tillaga var samþykkt með fimm atkvæðum en báðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá í atkvæðagreiðslu um hana. í fundargerð segjast þeir hafa setið hjá í ljósi þess að þeir telji kostnað við bygginguna og framkvæmdatímann áhyggjuefni. „Þannig er lægsta tilboðið sem kom fram í útboðinu um 64 prósent yfir upphaflegri fjárhagsáætlun. Tilboðin eru það langt umfram getu bæjarfélagsins að lítil sem engin von er til að viðræður við tilboðsgjafana leiði til farsællrar lausnar og muni tefja málið til skaða fyrir bæjarbúa,“ segir í fundargerð. Þá segir að þeir vilji fara í framkvæmd sem sé fjárhagslega raunhæf fyrir sveitarfélagið, taki stuttan tíma og mæti þörfum íþróttafélagsins og annarra notenda aðstöðunnar. „Við erum tilbúin að skoða ýmsar leiðir í því sambandi en bendum t.d. á gervigrasvöll í fullri stærð, viðbyggingu við núverandi íþróttahús eða loftborið hús,“ segja Sjálfstæðismenn.
Hveragerði Hamar Tengdar fréttir Leggja til nýja Hamarshöll á grunni þeirrar sem fauk: „Búin að vera mikil sorg“ Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar í Hveragerði leggur til að reisa skuli nýja Hamarshöll á grunni þeirrar sem fauk í febrúar fyrr á þessu ári. Höllin skuli reist úr föstum efnum og áætlað er að hún verði tekin í notkun haustið 2023. 22. júlí 2022 10:30 Hvergerðingar gera ráð fyrir rúmlega hundrað milljónum króna í bætur Fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis segir framtíð Hamarshallarinnar, sem varð mikið bitbein í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, alfarið vera í höndum nýrrar bæjarstjórnar. Þá segir hann að gert sé ráð fyrir því að tjónabætur vegna hallarinnar muni nema 108 milljónum króna. 26. maí 2022 11:43 Segja ekki rétt að nýr dúkur hafi verið pantaður á Hamarshöllina Nýr meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar segir fullyrðingar fyrrverandi bæjarstjóra um að nýr dúkur hafi verið pantaður á Hamarshöllina ekki réttar. 7. júní 2022 22:27 Gagnrýna að endurreisa eigi 5.000 fermetra hús sem fauk í heilu lagi Minnihlutinn í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar gera alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks að endurreisa uppblásna íþróttahöll sem fauk í óveðri í febrúar án frekari greiningarvinnu. 14. apríl 2022 21:06 Sjálfboðaliðar fjarlægja dúk Hamarshallarinnar í Hveragerði Fjöldi sjálfboðaliða er nú við störf í Hveragerði þar sem loftborna íþróttahúsið Hamarshöllin var en hún fauk í miklu óveðri 22. febrúar síðastliðinn. Hlutverk sjálfboðaliðanna er að fjarlægja dúkinn, sem er um sex þúsund fermetrar. 2. apríl 2022 14:04 Hvergerðingar taka höndum saman og krakkarnir þakklátir Hvergerðingar hyggjast taka höndum saman við að endurbyggja Hamarshöllina sem eyðilagðist í óveðrinu sem gekk yfir í gærmorgun og margir ætla að gefa vinnu sína. Þeir segja þetta mikinn skell fyrir samfélagið en ætla að taka þetta á jákvæðninni. 23. febrúar 2022 23:30 Hamarshöllin í Hveragerði fokin Hamarshöllin, risa blöðru íþróttahús er fokin og stendur grunnur hússins aðeins eftir. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði staðfesti að höllin hafi fokið snemma í morgun í ofsaveðri í Hveragerði. 22. febrúar 2022 09:54 Hamarshöllin risin Nýja Hamarshöllin í Hveragerði er risin. Er þetta fyrsta loftborna íþróttahúsið á Íslandi. 8. júlí 2012 10:13 Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Fleiri fréttir Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ Sjá meira
Leggja til nýja Hamarshöll á grunni þeirrar sem fauk: „Búin að vera mikil sorg“ Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar í Hveragerði leggur til að reisa skuli nýja Hamarshöll á grunni þeirrar sem fauk í febrúar fyrr á þessu ári. Höllin skuli reist úr föstum efnum og áætlað er að hún verði tekin í notkun haustið 2023. 22. júlí 2022 10:30
Hvergerðingar gera ráð fyrir rúmlega hundrað milljónum króna í bætur Fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis segir framtíð Hamarshallarinnar, sem varð mikið bitbein í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, alfarið vera í höndum nýrrar bæjarstjórnar. Þá segir hann að gert sé ráð fyrir því að tjónabætur vegna hallarinnar muni nema 108 milljónum króna. 26. maí 2022 11:43
Segja ekki rétt að nýr dúkur hafi verið pantaður á Hamarshöllina Nýr meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar segir fullyrðingar fyrrverandi bæjarstjóra um að nýr dúkur hafi verið pantaður á Hamarshöllina ekki réttar. 7. júní 2022 22:27
Gagnrýna að endurreisa eigi 5.000 fermetra hús sem fauk í heilu lagi Minnihlutinn í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar gera alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks að endurreisa uppblásna íþróttahöll sem fauk í óveðri í febrúar án frekari greiningarvinnu. 14. apríl 2022 21:06
Sjálfboðaliðar fjarlægja dúk Hamarshallarinnar í Hveragerði Fjöldi sjálfboðaliða er nú við störf í Hveragerði þar sem loftborna íþróttahúsið Hamarshöllin var en hún fauk í miklu óveðri 22. febrúar síðastliðinn. Hlutverk sjálfboðaliðanna er að fjarlægja dúkinn, sem er um sex þúsund fermetrar. 2. apríl 2022 14:04
Hvergerðingar taka höndum saman og krakkarnir þakklátir Hvergerðingar hyggjast taka höndum saman við að endurbyggja Hamarshöllina sem eyðilagðist í óveðrinu sem gekk yfir í gærmorgun og margir ætla að gefa vinnu sína. Þeir segja þetta mikinn skell fyrir samfélagið en ætla að taka þetta á jákvæðninni. 23. febrúar 2022 23:30
Hamarshöllin í Hveragerði fokin Hamarshöllin, risa blöðru íþróttahús er fokin og stendur grunnur hússins aðeins eftir. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði staðfesti að höllin hafi fokið snemma í morgun í ofsaveðri í Hveragerði. 22. febrúar 2022 09:54
Hamarshöllin risin Nýja Hamarshöllin í Hveragerði er risin. Er þetta fyrsta loftborna íþróttahúsið á Íslandi. 8. júlí 2012 10:13