Kærustuparið Karen og Margeir kvöddu veturinn með klúbbakvöldi.Einar Snorri
Karen Grétars og DJ Margeir eru nýtt plötusnúða kærustupar en þau héldu sitt fyrsta sameiginlega klúbbakvöld síðastliðinn miðvikudag, kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta, á skemmtistaðnum Auto. Margt var um manninn og þekkt andlit dönsuðu saman inn í sumarið.
Þetta fyrsta Smirnoff klúbbakvöld plötusnúða parsins ber heitið Hitabylgja og segir í fréttatilkynningu að það hafi heppnast vel.
„Hitatölur hækkuðu þegar kvöldið nálgaðist og það var pakkfullt út úr dyrum enda landsmenn greinilega tilbúnir að kveðja veturinn og myrkrið. Þakið ætlaði að rifna af húsinu þegar Daníel Ágúst steig á svið líkt og sólarupprás í gulum jakkafötum og tók syrpu með DJ Margeiri. Svo lokaði hann einnig kvöldinu með laginu Over sem er GusGus klassík og allir tóku undir.“
Daníel Ágúst tryllti lýðinn á Auto með GusGus smellum.Einar Snorri
Karen hefur spilað á stórum klúbbum um allan heim en það kom henni á óvart hvernig orkan var á Auto. Hún segir þetta ekki hafa verið síðra en að spila erlendis.
„Það var mikið af gömlum vinum sem mættu með góða skapið ásamt mörgum af skólafélögunum úr lögfræðinni. Það gekk mjög vel að spila með Margeiri enda er góð stemning á milli okkar og við erum með mjög svipaðan tónlistarsmekk þannig að það var extra stuð,“ segir Karen. Hún á ekki langt að sækja tónlistaráhugann þar sem hún er dóttir þjóðþekkta tónlistarmannsins Grétars Övarssonar úr Stjórninni.
Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá kvöldinu:
Glimmer og gleði á síðasta vetrardeginum.Einar SnorriFólk var í miklu stuði og alveg tilbúið að bjóða sumarið velkomið.Einar SnorriDaníel Ágúst tók danssett með Margeiri.Einar SnorriTrommarinn og tónlistarmaðurinn Egill Örn Rafnsson var í góðum gír.Einar SnorriStílistinn Ellen Loftsdóttir dansaði inn í sumarið.Einar SnorriDansarinn Rebekka Sól Þórarinsdóttir var á svæðinu.Einar SnorriMargeir og Karen vinna vel saman og segja góða stemningu á milli þeirra.Einar SnorriDaníel Ágúst er alltaf eitursvalur.Einar SnorriDansandi glaðir plötusnúðar.Einar SnorriAð sögn Karenar mætti fólkið með góða skapið, eins og sést hér.Einar SnorriÞað var margt um manninn á viðburðinum Hitabylgju.Einar SnorriÞessi fagnaði sumrinu með sínu breiðasta brosi.Einar SnorriFullt af fólki mætti á viðburðinn Hitabylgju og var stemningin góð að sögn Karenar. Einar Snorri