110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi Atli Ísleifsson skrifar 25. apríl 2023 07:46 Tyrklandsstjórn kennir PKK um dauða um 40 þúsund manna frá því að samtökin hófu vopnaða baráttu sína fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda í suðausturhluta Tyrklands árið 1984. Myndin er úr safni. Getty Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu.
Erlendir fjölmiðlar segja að alls hafi 110 manns verið handteknir í 21 héraði, flestir í bænum Diyarbakir í suðausturhluta landsins þar sem Kúrdar eru í meirihluta. Í frétt DW er haft eftir kúrdíska þingmanninum Tayip Temel að stjórnmálamenn, lögmenn, blaðamenn og listamenn séu í hópi hinna handteknu. Hann segir að handtökurnar megi rekja til ótta Recep Tayyip Erdoğan Tyrklandsforseta og hans manna að tapa kosningunum sem framundan séu. Forseta- og þingkosningar fara fram í Tyrklandi þann 14. maí næstkomandi þar sem Erdogan sækist eftir endurkjöri. PKK hefur lengi barist fyrir aukinni sjálfstjórn Kúrda í Tyrklandi. Auk Tyrkja skilgreina bæði Bandaríkin og Evrópusambandið PKK sem hryðjuverkasamtök, en Evrópudómstóllinn hefur áður gagnrýnt ESB fyrir að hafa ekki fylgt réttu verklagi þegar samtökin voru flokkuð sem hryðjuverkasamtök. Tyrklandsstjórn kennir PKK um dauða um 40 þúsund manna frá því að samtökin hófu vopnaða baráttu sína fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda í suðausturhluta Tyrklands árið 1984.
Tyrkland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira