Ólga á Spáni eftir óþverra gærkvöldsins: „Getur ekki haldið áfram svona“ Aron Guðmundsson skrifar 22. maí 2023 07:00 Vinicius gerði dómara leiksins viðvart en hann afðhafðist ekkert Vísir/Getty Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid, var harðorður í garð stjórnenda spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid varð fyrir kynþáttaníð í leik með liðinu í gærkvöldi.
Hópur stuðningsmanna Valencia tók sig til og beindu apahljóðum í áttina að Vinicius Junior í leik Valencia gegn Real Madrid í gærkvöldi. Ancelotti, sem er margreyndur knattspyrnustjóri, sakar stjórnendur spænsku úrvalsdeildarinnar um getu- og aðgerðarleysi þegar kemur að því að taka á kynþáttaníð á leikjum deildarinnar. Vinicius gerði dómara leiksins í leik Valencia og Real Madrid viðvart er honum ofbauð hegðun stuðningsmanna Valencia en dómarinn lét leikinn halda áfram í stað þess að taka á málinu og stöðva leik. ,,Þú verður að stöðva leikinn við svona aðstæður," sagði Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid eftir leik gærkvöldsins. ,,Það er ekki hægt að halda áfram við svona aðstæður. Ég sagði við dómarann að ég væri að íhuga að skipta leikmanninum af velli. Það er hugsun sem hefur aldrei áður skotið upp kolli hjá mér." Um afar sorglegar aðstæður sé að ræða. ,,Hann vill bara spila knattspyrnu, hann er ekki reiður en hann er sorgmæddur yfir því sem átti sér stað" Þetta er því miður ekki í fyrsta skipti sem Vinicius Junior verður fyrir kynþáttaníð á knattspyrnuleikvöngum Spánar. ,,Honum er sýnd vanvirðing á öllum knattspyrnuleikvöngum á Spáni," sagði Dani Ceballos, liðsfélagi Vinicius. ,,Við verðum að vernda hann, þetta getur ekki haldið áfram svona."
Spænski boltinn Kynþáttafordómar Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Haukar fá risavaxinn liðsauka Körfubolti Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Sjá meira