Aldraða konan sem var skotin með rafbyssu er látin Samúel Karl Ólason skrifar 24. maí 2023 12:01 Clare Nowland er sögð hafa látist á sjúkrahúsi í dag. Eldri áströlsk kona sem skotin var með rafbyssu á dögunum er látin. Lögregluþjónn hefur verið ákærður fyrir að skjóta hina 95 ára gömlu Clare Nowland með rafbyssu þegar hún nálgaðist hann hægt á göngugrind en með hníf í hendi.
Samkvæmt fjölmiðlum í Ástralíu lést Nowland á sjúkrahúsi í dag umkringd fjölskyldu sinni. Fyrr í dag var tilkynnt að lögregluþjónn hefði verið ákærður fyrir að skjóta hana með rafbyssu. Umrætt atvik átti sér stað í bænum Cooma í Nýja Suður-Wales í Ástralíu í síðustu viku. Lögregluþjónar voru þá kallaðir til hjúkrunarheimilis þar sem Nowland var sögð óróleg og með hníf. Tveir lögregluþjónar mættu á vettvang en þá hélt Nowland á steikarhníf. Lögreglustjórinn Peter Cotter segir að Nowland, sem var 43 kíló að þyngd, hafi neitað að leggja hnífinn frá sér og hún hafi verið að nálgast lögregluþjónana tvo, hægt, á göngugrind. Þá skaut lögregluþjónninn Kristian White hana með rafbyssu. Nowland féll í gólfið og höfuðkúpubrotnaði og blæðingu inn á heila. Ríkisútvarp Ástralíu sagði frá því í morgun að White hefði verið ákærður fyrir að skaða Nowland og að sú ákvörðun hafi verið tekin í kjölfar ítarlegrar rannsóknar. Ekki liggur fyrir hvaða áhrif dauðsfall Nowland mun hafa á ákærurnar gegn White. Sjá einnig: Heita því að hlífa engum eftir að öldruð kona með heilabilun var beitt rafbyssu Karen Webb, yfirmaður lögreglunnar í Nýja Suður-Wales, sagði blaðamönnum í morgun að mikilvægt væri að samfélagið gæti treyst lögregluþjónum. Það sé hægt að treysta lögregluþjónum og þetta sé eitt atviki af um tveimur milljónum útkalla á ári hverju.
Ástralía Rafbyssur Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira