Óðagot þegar alelda hús hrundi Samúel Karl Ólason skrifar 25. maí 2023 10:57 Veggir byggingarinnar hrundu vegna eldsins. EPA/DEAN LEWINS Þúsundir íbúa Sydney horfðu á sjö hæða sögufræga byggingu í viðskiptahverfi borgarinnar verða eldhafi að bráð í dag. Eldurinn kviknaði um fjögur leytið að degi til (að staðartíma) og varð fljótt alelda.
Slökkviliðsmenn reyndu að hamla útbreiðslu eldsins en byggingin hrundi vegna eldhafsins. Í frétt ríkisútvarps Ástralíu segir að mikið óðagot hafi gripið um sig meðal vegfarenda þegar fyrsti veggur byggingarinnar hrundi og að múrsteinar hafi fallið á götuna. Fleiri en 120 slökkviliðsmenn á þrjátíu slökkviliðsbílum börðust gegn eldinum og voru lögregluþjónar og sjúkraflutningamenn einnig að störfum á svæðinu. Búið er að ná tökum á eldinum. Engan sakaði í eldinum eða vegna hans. Byggingin var reist árið 1912 og þar var langi þekkt hattaverksmiðja. Samkvæmt frétt ABC stóð til að breyta byggingunni í hótel. Eldsupptök liggja ekki fyrir en eldurinn er talinn hafa kviknað á þriðju hæð hússins. Forsvarsmenn lögreglunnar segjast hafa áhyggjur af því hvaða áhrif hitinn hafi haft á nærliggjandi byggingar og voru þær rýmdar í bili. Eldurinn náði að teygja tungur sínar í önnur hús en slökkviliðsmenn náðu að slökkva þá elda sem kviknuðu. Gífurlegur eldur logaði í byggingunni.EPA/DEAN LEWINS
Ástralía Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Vučić játar ósigur Erlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira